Jóhann Skúlason knapi ársins 2011
Jóhann Skúlason er knapi ársins 2011. Í valinu vegur án ef þyngst frammistaða hans á HM2011 þar sem hann varð heimsmeistari í tölti í fimmta sinn á Hnokka frá Fellskoti. Eitthvað sem seint verður leikið eftir. Enginn annar knapi kemst með tærnar þar sem Jóhann hefur hælana í keppni í tölti.
Fáum kom líka á óvart að Þórður Þorgeirsson skyldi valinn kynbótaknapi ársins, en hann ber höfuð og herðar yfir aðra knapa á þeim vettvangi í kynbótasýningum ársins, sama hvar á það er litið.
Íþróttaknapi ársins 2011 er Sigursteinn Sumarliðason, en hann varð bæði Landsmóts – og Íslandsmeistari í tölti á Ölfu frá Blesastöðum 1a auk þess að ná góðum árangri í hestaíþróttum og gæðingakeppni almennt.
Skeiðknapi ársins er Bergþór Eggertsson, en hann er, má segja, orðinn áskrifandi að heimsmeistaratitli í 250 metra skeiði á Lótus frá Aldenghoor og hefur verið í fremstu röð í skeiðgreinum um árabil.
Gæðingaknapi árseins er Hinrik Bragason, en hann náði þeim eftirsóknarverða árangri að sitja efsta gæðing á Landsmóti, sem á LM2011 var stóðhesturinn og gæðingurinn Ómur frá Kvistum. Hinrik náði einnig frábærum árangri í öðrum greinum hestaíþrótta og gæðingakeppni.
Efnilegasti knapi ársins er Arna Ýr Guðnadóttir, en hún náði frábærum árangri á keppnistímabilinu, varð þrefaldur Íslandsmeistari í fjórgangsgreinum á Þrótti frá Fróni og Reykjavíkurmeistari í tölti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH