Jóhanna, Haukur, Signý og Kristófer samanlagðir sigurvegarar
Þá er Íslandsmótinu að ljúka og í dag voru verðlaunaðir samanlagði sigurvegarar. Í fjórgangsgreinum voru það systurnar Jóhanna Margrét og Signý Sól Snorradætur sem hrepptu titlana. Jóhanna í meistaraflokki á Bárði frá Melabergi og Signý Sól í ungmennaflokki á Kolbeini frá Horni I.
Í fimmgangsgreinum var það Haukur Baldvinsson á Sölva frá Stuðlum sem hreppti titilinn en þeir urðu einnig Íslandsmeistarar í samanlögðum fimmgangsgreinum í fyrra. Í ungmennaflokki var það Kristófer Darri Sigurðsson sem stóð efstur á Ás frá Kirkjubæ.
Meistaraflokkur
Fjórgangssigurvegari: Jóhanna Margrét Snorradóttir / Bárður frá Melabergi
Tölt T1 8,60
Fjórgangur V1 7,63
Fimmgangssigurvegari: Haukur Baldvinsson / Sölvi frá Stuðlum
Tölt T1 6,33
Fimmgangur F1 6,73
Gæðingaskeið PP1 7,50
Ungmennaflokkur
Fjórgangssigurvegari: Signý Sól Snorradóttir / Kolbeinn frá Horni I
Tölt T1 6,80
Fjórgangur V1 7,43
Fimmgangssigurvegari: Kristófer Darri Sigurðsson / Ás frá Kirkjubæ
Tölt T2 6,27
Fimmgangur F1 6,63
Gæðingaskeið PP1 6,12
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH