Jóhanna Margrét í þróttamaður Mána 2011
Jóhanna Margrét Snorradóttirer íþróttamaður Mána 2011. Hún náði mjög góðum árangri á árinu, er hvarvetna til fyrirmyndar og stundar sína íþrótt af þrótti og metnaði. Hún vann meðal annars unglingaflokkinn á Landsmótinu á Vindheimamelum í sumar með eftirminnilegum hætti á Bruna frá Hafsteinsstöðum, varð Íslandsmeistari í fimmgang unglinga, og Suðurlandsmeistari í fjórgangi og fimmgangi unglinga. Stjórn Mána óskar Jóhönnu Margréti innilega til hamingju með árangurinn og titilinn
Margareterhof er selt
Átta hlutu gullmerki LH
Suðurlandsdeildin áfram á EiðfaxaTV
Heim í hlað – Ný þáttaröð á EiðfaxaTV