Jóhanna Margrét Íslandsmeistari í fjórgangi

  • 4. júlí 2021
  • Fréttir

Jóhanna Margrét Snorradóttir er Íslandsmeistari í fjórgangi árið 2021 og er þetta fyrsti Íslandsmeistaratitill hennar í fullorðinsflokki. Hún sýndi hinn gráa og geysifagra Bárð frá Melabergi. Jakob Svavar Sigurðsson sem var í forystu eftir forkeppni lenti í því leiðinlega atviki að hjá honum slitnaði ístaðsól og því hætti hann keppni.

Verðlaunahafar í A-úrslitum voru því allt konur að þessu sinni.

 

Sæti

Keppandi

Heildareinkunn

1

Jóhanna Margrét Snorradóttir / Bárður frá Melabergi

8,07

2

Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir / Óskar frá Breiðstöðum

7,83

3-4

Helga Una Björnsdóttir / Hnokki frá Eylandi

7,70

3-4

Ragnhildur Haraldsdóttir / Úlfur frá Mosfellsbæ

7,70

5

Mette Mannseth / Skálmöld frá Þúfum

7,57

6

Jakob Svavar Sigurðsson / Hálfmáni frá Steinsholti

0,00

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link