Jói Skúla minnir á sig
Jóhann R. Skúlason er einn af þeim landsliðsknöpum sem starfa á erlendri grundu. Hann mætti á worldranking mót á Eichenhof í Þýskalandi um helgina með Finnboga frá Minni-Reykjum.
Það má segja að árangur þeirra hafi verið glæsilegur en þeir hlutu 8,77 í forkeppni í tölti og 7,47 í forkeppni í fjórgangi.
Jóhann er einn af þeim knöpum sem valdir voru í landsliðshóp Íslands í vetur og því hlýtur hann með þessum einkunnum að minna vel á sig þegar að endanlegu vali landsliðsins kemur að loknu Íslandsmóti.
Allar niðurstöður úr forkeppni á mótinu má nálgast með því að klikka hér
Styttu haustið með EiðfaxaTV