Jói Skúla og Finnbogi efstir í tölti og fjórgangi
Danska meistaramótið hófst í gær. Keppt var m.a. í tölti T1 og slaktaumatölti T2 og í morgun var keppt í fjórgangi V1.
Það er óhætt að segja að Jóhann R. Skúlason á Finnboga frá Minni-Reykjum sé að standa sig vel. Þeir félagarnir eru efstir að lokinni forkeppni bæði í tölti og fjórgangi. Einkunn þeirra í tölti er 8,80 og í fjórgangi 7,70.
Í forkeppni í tölti er Hans-Christian Løwe og Vigdís frá Vivildgard í öðru sæti með 8,27 og í þriðja sæti situr Frederikke Stougard og Börkur frá Sólheimum með 8,13.
Í fjórgangi eru þær Steffi Svendsen með Sjóla von Teland og Sys Pilegaard með Flugu frá Langstöðum jafnar í 2-3 sæti með 7,33 í einkunn.
Í slaktaumatölti er Kristian Tofte Ambo í forystu en hann situr Tón frá Ólafsbergi og er einkunn þeirra 7,90. Í öðru sæti er Julie Christiansen á Felix frá Blesastöðum 1A með 7,70 í einkunn og jöfn í þriðja til fjórða sæti eru Hans-Christian Løwe með Eldjárn frá Vivildgard og Amalie Møller San Pedro á Arnari frá Store Skovgaard með 7,37 í einkunn.
Fylgjast má með öllum úrslitum mótsins með því að smella hér
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH