Norðurlandamót Jói Skúla stendur vel að vígi í töltinu

  • 7. ágúst 2026
  • Fréttir

Jóhann Rúnar Skúlason og Evert frá Slippen. Ljósmynd: Cassanda Laikmets/Clfoto

Þórarinn og Nátthrafn í B-úrslit

Fösturdagur á Norðurlandamóti hófst á forkeppni í tölti. Þar voru 22 knapar með hesta sína skráðir til leiks og var einn íslenskur landsliðsknapi þeirra á meðal en það er Þórarinn Eymundsson á Náttfara frá Varmalæk, þeir hlutu 7,47 í einkunn og 6-7 sæti og því í B-úrslit.

Á toppnum með nokkuð afgerandi forystu er Jóhann Rúnar Skúlason á Evert frá Slippen með 8,77 í einkunn en þeir keppa fyrir Danmörku. Í öðru sæti er liðsfélagi Jóhann Iben Katrine Andersen á Gideon fra Tømmerby Kær með 8,07 í einkunn. Í þriðja sætinu er svo Arnór Dan Kristinsson á Dökkva frá Álfhólum með 7,63 en þeir keppa fyrir hönd Finnlands.

Hægt er að sjá dagskrá og ráslista á HorseDay og horfa á mótið í beinni á EiðfaxaTV.

 

Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Jóhann Rúnar Skúlason / Evert fra Slippen 8,77
2 Iben Katrine Andersen / Gideon fra Tømmerby Kær 8,07
3 Arnór Dan Kristinsson / Dökkvi frá Álfhólum 7,63
4 Josefin Birkebro / Kjarval från Knutshyttan 7,57
5 Laura Midtgård / Gimsteinn frá Íbishóli 7,50
6-7 Filippa Montan / Lögg fra Slippen 7,47
6-7 Þórarinn Eymundsson / Náttfari frá Varmalæk 7,47
8 Madelen Johansson / Sjarmi från Kristineberg 7,30
9 Agnes Helga Helgadóttir / Sigur fra Jakobsgården 7,23
10 James Faulkner / Hálfmáni frá Steinsholti 7,20
11 Bernt Severinsen / Tígull fra Kleiva 7,20
12 Elin Nilsson / Þokkadís frá Selfossi 7,07
13 Sigurður Óli Kristinsson / Lótus fra Søgård 7,00
14 Christina Lund / Gulltoppur frá Selfossi 6,93
15 Louise Löfgren / Hástígur Rex Depillsson från Skomakarns 6,77
16 Rasmus Møller Jensen / Harpa frá Höskuldsstöðum 6,63
17 Morten Løver / Ari frá Stóra-Hofi 6,57
18 Elsa Teverud / Kolskeggur från Gunvarbyn 6,50
19 Katariina Koskela / Kvikur frá Nautabúi 6,33
20 Katie Sundin Brumpton / Kolbeinn från Fögruhlíð 6,07
21-22 Sofia Kaber / Logi frá Staðartungu 0,00
21-22 Anne Frank Andresen / Vökull frá Leirubakka 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link