Jökull ráðinn nýr landsliðsþjálfari Svíþjóðar

  • 26. ágúst 2026
  • Fréttir

Svíar hafa átt góðu gengi að fagna, sérstaklega á Norðurlandamóti, þar sem þeir hafa unnið Liðsbikarinn þrjú mót í röð. Ljósmynd: Cassandra Laikmets

Ný staða aðstoðarlandsliðsþjálfara með áherslu á yngri knapa einnig sett á laggirnar

Sænska Íslandshestasambandið (SIF) hefur tilkynnt um ráðningu á Jökli Guðmundssyni sem nýjum landsliðsþjálfara Svíþjóðar, samhliða honum tekur Sebastian Nordlander við nýstofnuðu starfi aðstoðarlandsliðsþjálfara með sérstaka áherslu á yngri landsliðsknapa. Hlutverk Sebastians sem aðstoðarþjálfara mun jafnframt hafa sérstaka áherslu á ungmennastarf. Þeir munu taka formlega við störfum þann 1. október næstkomandi.

Jökull tekur við keflinu af Sissel Holmén sem kveður starfið eftir sjö farsæl ár. Hún skilar góðu búi, en sænska landsliðið bar nýverið sigur úr býtum sem stigahæsta þjóðin á Norðurlandamótinu á Margaretehof en þann bikar hafa þau unnið síðastliðin þrjú Norðurlandamót.

Jökull hefur verið búsettur í Svíþjóð frá árinu 1998 og er öllum hnútum kunnugur í Íslandshestaheiminum. Hann hefur m.a. starfað sem járningamaður, þjálfari og reiðkennari, auk þess að reka hrossarækt á Allemansängen ásamt fjölskyldu sinni. Jökull hefur sjálfur keppt með sænska landsliðinu og tekið að sér ýmis trúnaðarstörf í gegnum tíðina og er  meðal annars sem gæðingadómari og oft sýningastjóri og mælingamaður á kynbótasýningum.

í viðtali við sænska hestamiðilinn Ridsport kveðst Jökull mjög spenntur fyrir verkefninu. Markmið hans er ekki að byrja upp á nýtt, heldur að byggja ofan á þann góða grunn sem til staðar er og skapa sterka liðsheild fyrir komandi stórmót.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link