Jólagjöf hestamannsins
Það eru ekki nema rétt rúmir sex mánuðir í Landsmót hestamanna á Hellu næsta sumar. Er því ekki upplagt að lauma miða á mótið í jólapakka hestamannsins?
Á skrifstofu LH/LM eru seld falleg gjafabréf fyrir miðum á mótið og því leikur einn að gefa hestamanninum í fjölskyldunni einmitt það sem hann vantar!
Forsalan er í fullum gangi og stendur hún til og með 31. desember 2013. Nú má fá vikupassa á kr. 12.000 fyrir félaga í LH/BÍ en þetta verð hækkar um áramótin upp í kr. 15.000. Svo það er um að gera að tryggja sér miða á besta verðinu fyrir áramót!
Hafðu samband á netfangið [email protected] eða hringdu í síma 514 4030 og græjaðu jólagjafirnar! Minnum á að hjá okkur er einnig hægt að kaupa DVD diska frá mótunum 2011 og 2012, sem og buff, húfur, boli og peysur merkt Landsmóti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
LH auglýsir eftir mótshöldurum