Jólakveðja frá formanni Landsambands hestamannafélaga
Kæra hestafólk og vinir.
Það er við hæfi á jólum og áramótum að líta til baka yfir árið sem senn gengur sinn veg og ekki síður að horfa fram á veginn og láta sig hlakka til nýs árs með nýjum áskorunum og viðfangsefnum.
Þrátt fyrir krefjandi aðstæður af völdum Covid höfum við hestamenn náð að halda alla okkar helstu viðburði. Ef frá eru taldir heimsleikar íslenska hestsins sem ekki var mögulegt að halda, þá var mótahald hér heima í miklum blóma. Má þar nefna frábært Íslandsmót á Hólum sem haldið var með nýju sniði og veittir voru nýjir farandbikarar í öllum flokkum sem gefnir voru af styrktaraðilum, hestamannafélögum og velunnurum. Þótti mótið heppnast einkar vel og er væntanlega eitt jafnsterkasta mót sem haldið hefur verið. Einnig var haldið vel heppnað Íslandsmót barna og unglinga á félasgssvæði Sörla í Hafnarfirði þar sem jafnframt var tekin skóflustunga að nýrri og glæsilegri reiðhöll, fjórðungsmót í Borgarnesi sem án efa er eitt glæsilegasta fjórðungsmót síðari ára, Reykjavíkurmeistaramót sem var eitt stærsta hestamót sem haldið hefur verið hingað til (ef ekki það stærsta) sé tekið mið af fjölda skráninga, og svo mætti lengi telja. Þá fóru flestar innanhúsmótaraðir fram með miklum sóma þó að flest hafi mótin verið án áhorfenda, en þar kom sjónvarpstæknin sterk inn.
Margt fleira jákvætt og ánægjulegt hefur átt sér stað á árinu hjá okkur hestamönnum. Má þar m.a. nefna sáttmála milli hestafólks og annarra vegfarenda um umferðaröryggi sem var undirritaður í Félagsheimili Fáks í Víðidal 8. maí 2021. Við sama tækifæri var frumsýnd fræðslumynd, unnin í samvinnu LH, Horses of Iceland og Samgöngustofu. Markmið hennar er að fræða aðra vegfarendur um eðli og viðbragð hestsins við áreiti, til þess að minnka hættu á slysum. Þar er lögð áhersla á að ólíkir útivistahópar geti notið útivistar saman, setji sig í spor hvers annars og kunni að bregðast rétt við. Frábært framtak og þarft og eiga þeir sem að þessu komu miklar þakkir skildar frá okkur hestamönnum.
Fyrsta Þolreið LH fór fram í lok ágúst. Keppnin var haldin sem eins konar prufureið til að safna saman þekkingu og reynslu ásamt mynd- og kynningarefni með það fyrir augum að skoða möguleikann á að gera mótið að árlegum viðburði. Þolreið er keppnisgrein sem nýtur mikilla vinsælda um allan heim og ef vel tekst til má búast við að greinin geti vakið áhuga á íslenska hestinum hjá hestamönnum sem ekki hafa áður kynnst íslenska hestinum. Þolreið 2022 hefur hlotið nafnið Survive Iceland og verður haldin í lok ágúst. Haldið verður til á Rjúpnavöllum og riðið um friðland að Fjallabaki og fleiri slóða í nágrenni. Þetta er einkar spennandi verkefni sem vonandi á eftir að gefa fleiri knöpum og fleiri hestgerðum tækifæri til að sanna sig í keppni.
Á vordögum tilkynnti samgönguráðherra um aukafjárveitingu til reiðvegamála sem kemur sér mjög vel þó að vissulega viljum við hestamenn enn meira og munum halda áfram að berjast fyrir auknum framlögum til reiðvegamála.
Aðsókn að Skógarhólum var góð í sumar og voru hópar á staðnum um hverja helgi, einnig var talsverð nýting á virkum dögum. Félagsskapur „Vina Skógarhóla“ undir forystu Eggerts Hjartarsonar gerði allnokkrar endurbætur á húsinu í sumar líkt og undangengin ár og verður þeim aðilum seint full þakkað.
Stundum hefur verið rætt að hinn almenni útreiðamaður fái ekki næga athygli og að við sem ríðum fyrst og fremst út okkur til ánægju séum lítt sýnileg, hvort sem er í fjölmiðlum eða annars staðar í umræðunni. Starfshópur um kynningar- og útbreiðslumál mun á nýju ári hleypa úr vör samfélagsmiðlaátaki með það að markmiði að opna heim almennrar hestamennsku á Íslandi og bæta ímynd hestamennskunnar, auka nýliðun og bæta aðgengi að fjölmiðlum. Átakið gengur undir vinnuheitinu „Hundrað hestamenn heimsóttir“. Til stendur að heimsækja hinn almenna hestamann vítt og breitt um landið, taka stutt viðtöl og hampa þannig grasrótinni í aðildarfélögum LH. Hestamenn eru fjölbreyttur hópur sem stundar hestamennsku á ólíkum forsendum. Þessu átaki er ætlað að styrkja rödd hestamanna almennt, opna heim hestamennskunnar og smíða upplýsingaleið inn í önnur útivistar- og íþróttafélög.
Þegar þessi orð eru rituð í skammdeginu að morgni aðfangadags á Skrauthólum á Kjalarnesi er rétt að muna að daginn er tekið að lengja og brátt mun sól hækka á lofti. Það er því til margs að hlakka enda mikið um spennandi viðburði og samkomur sem áætlað er að halda á árinu 2022. Ber þar hæst Landsmót á Gaddstaðaflötum, þar sem við munum fjölmenna sem aldrei fyrr, Íslandsmót fullorðinna á sama stað, Íslandsmót barna og unglinga í Borgarnesi, Norðurlandamót í Finnlandi, Survive Iceland að Fjallabaki, 100 ára afmælismót Fáks í Víðidal og fleira og fleira.
Á þessum tímapunkti er mér efst í huga þakklæti til alls þess frábæra fólks sem leggur fram ómælda og óeigingjarna sjálfboðavinnu til að, svo öflugt félagsstarf eins og starf hestmannafélaganna og LH er, geti gengið. Án dugnaðar og elju sjálfboðaliða væri hvorki mótahald eða annað félagsstarf. Þá er mér ofarlega í huga þakklæti fyrir allt það góða og skemmtilega fólks sem ég hef hitt og starfað með á árinu en það er sannkallaður heiður að vinna með og fyrir hestafólk og hlakka ég mikið til ársins sem framundan er.
Um leið og ég þakka hestafólki nær og fjær fyrir góð og ánægjuleg samskipti á árinu, óska ég ykkur öllum, fyrir hönd LH, gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Guðni Halldórsson
formaður Landssambands hestamannafélaga
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH