Jonathan Nunn sýnikennsla og fyrirlestur – Byltingarkennd tækni

  • 19. febrúar 2020
  • Fréttir

Jonathan Nunn, járningameistari, verður með fyrirlestur og sýnikennslu í Eldhestum. Hann mun m.a. fara yfir hvernig nýta má ORTHO KIT við sjúkrajárningar.

Tímasetning sýnikennslu: 14.mars n.k. frá klukkan 09:00 til 16:00.
Tímasetning fyrirlesturs um Werkman Black: 13. mars frá klukkan 14:00-17:00 Frítt inn. Skráning á [email protected]

Verð krónur 15.000 – járningamannafélagið niðurgreiðir þátttökugjaldið um krónur 5000, fyrir skuldlausa félaga.

Joanathan verður með fyrirlestur og sýnikennslu á Werkmann Black á föstudeginum. Mælitækið er byltingarkennt tæki sem sýnir hreyfiferla og lendingu hófsins. Þetta er tækni sem gæti nýst öllum þeim sem starfa við hesta hvort sem það er í þágu lækninga, járninga, þjálfun eða sýninga. í myndbandi sem fylgir fréttinni má sjá hvernig tæknin er notuð.

Jonathan Nunn er með meira en 34 ára reynslu sem járningamaður og er margfaldur meistari í járningum. Jonathan stundaði nám í The Royal Veterinary Collage (RVC). Hann býr í Stafford á Englandi og rekur þar járningaþjónustu þar sem fimm járningamenn starfa. Jonathan hefur getið sér gott orð í keppnum en hann þjálfaði norksa jánarningarmanna-liðið fyrir Evrópukeppnina árið 2014 og International Farrier Championship.

Jonathan Nunn

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link