Kallað eftir hrossum fyrir vorönn

  • 12. nóvember 2019
  • Fréttir

Útskrift reiðkennara 2016

Háskólinn á Hólum kallar eftir hrossum fyrir tamningar á vorönn 2020. Tamningarnar annast nemendur á 2. ári í Hestafræðideild, undir handleiðslu kennara.

Tamningar. Ferlið hefst með frumtamningu, sem miðar fyrst og fremst að því að gera trippin reiðfær. Samhliða er lögð áhersla á teymingar og aðra vinnu við hendi.  Í framhaldi af frumtamningunni hljóta hrossin grunnþjálfun, þar sem megináhersla er lögð á að gera þau góð í beisli, þjálfa samspil hvetjandi og hamlandi ábendinga, sem og undirbúning fyrir gangsetningu. Ennfremur uppbyggingu þreks, jafvægis og vilja.

Forkröfur: Trippin komi fortamin (a.m.k. bandvön). Þau þurfa að hafa náð góðum þroska. Æskilegt er að þau séu undan 1. verðlauna stóðhestum. Ætlast er til að búið sé að heyja trippin áður en þau koma í Hóla. Ekki  er tekið við stóðhestum.

 

Tamningatrippi komi á staðinn mánudaginn 6. janúar 2019, milli kl. 13:00 og 16:00.

Skiladagur laugardagurinn 14. mars.

Kostnaður – fyrir allt viðkomandi tímabil (ber ekki virðisaukaskatt), er kr. 120.000.

Innifalið: Allt uppihald, auk járninga  og ormalyfsgjafar.

Hér má panta fyrir hross í tamningar. 

Sem fyrr þakka Háskólinn á Hólum gott samstarf við hesteigendur, um land allt.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link