Kamban langbesta jólagjöfin!
„Þegar ég opnaði jólagjöfina mína frá mömmu og pabba var mynd af mér á Kambandi inni í pakkanum. Ég hélt ég hefði verið að fá myndina í jólagjöf en síðan sagði mamma við mig að ég væri að fá það sem væri á myndinni. Ég fór að gráta þegar ég áttaði mig á því að ég hefði fengið Kamban í jólagjöf. Langbesta jólagjöf sem ég hef fengið!“ segir Glódís Rún Sigurðardóttir sem ætlar að reyna að verja landsmótstitil sinn í barnaflokki á stóðhestinum Kamban frá Húsavík.
Viðtal við Glódísi Rún má nálgast í nýjasta tölublaði Eiðfaxa.
Hér er myndband af sýningu Glódísar og Kambans í milliriðlum í morgun. Myndbandið tók Henning Drath hjá þýsku hestafréttaveitunni isibless.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH