Kári og Gígjar hlutu hæstu einkunn í slaktaumatölti unglinga
Kári og Gígjar á forkeppni í T4 í morgun Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka
Dagskrá Íslandsmóts barna og unglinga, sem fram fer á Brávöllum á Selfossi þessa dagana, hélt áfram nú í morgun. Önnur keppnisgrein dagsins var slaktaumatölt (T4) í unglingaflokki.
Hæstu einkunn í forkeppni hlaut Kári Sveinbjörnsson á Gígjari frá Bakkakoti en þeir hlutu 7,03. Skammt á eftir honum er Gabríel Liljendal Friðfinsson á Erró frá Höfðaborg með 7,00 og í þriðja sæti er Viktor Leifsson á Hjara frá Hofi á Höfðaströnd með 6,97. Auk þessarra þriggja ríða til A-úrslita þær Kristín María Kristjánsdóttir á Skjóna frá Skálakoti og Bertha Liv Bergstað á Hólma frá Kaldbak. Knapar í sætum 6.-10. unnu sér þátttökurétt í B-úrslitum.
Niðurstöður í T4 unglingaflokki
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Kári Sveinbjörnsson / Gígjar frá Bakkakoti | 7,03 |
| 2 | Gabríel Liljendal Friðfinnsson / Erró frá Höfðaborg | 7,00 |
| 3 | Viktor Leifsson / Hjari frá Hofi á Höfðaströnd | 6,97 |
| 4 | Kristín María Kristjánsdóttir / Skjóni frá Skálakoti | 6,90 |
| 5 | Bertha Liv Bergstað / Hólmi frá Kaldbak | 6,83 |
| 6 | Sigríður Fjóla Aradóttir / Ekkó frá Hvítárholti | 6,80 |
| 7-8 | Hilmir Páll Hannesson / Goði frá Oddgeirshólum 4 | 6,77 |
| 7-8 | Apríl Björk Þórisdóttir / Sikill frá Árbæjarhjáleigu II | 6,77 |
| 9 | Erla Rán Róbertsdóttir / Glettingur frá Skipaskaga | 6,73 |
| 10 | Hrefna Kristín Ómarsdóttir / Dynjandi frá Álfhólum | 6,57 |
| 11 | Bryndís Anna Gunnarsdóttir / Dreyri frá Hjaltastöðum | 6,50 |
| 12 | Linda Guðbjörg Friðriksdóttir / Veigar frá Lækjarbakka | 6,47 |
| 13 | Gabríel Liljendal Friðfinnsson / Litríkur frá Miðengi | 6,43 |
| 14 | Árný Sara Hinriksdóttir / Sjöfn frá Aðalbóli 1 | 6,40 |
| 15 | Viktor Leifsson / Glaður frá Mykjunesi 2 | 6,37 |
| 16 | Loftur Breki Hauksson / Höttur frá Austurási | 6,20 |
| 17 | Ragnar Dagur Jóhannsson / Mánasteinn frá Vöðlum | 6,07 |
| 18 | Sigrún Sunna Reynisdóttir / Sprækur frá Fitjum | 5,90 |
| 19 | Ásthildur Viktoría Sigurvinsdóttir / Baldur frá Margrétarhofi | 5,83 |
Hæst dæmdi hestur í heimi
Viktoría leiðir fjórganginn í barnaflokki
Hollaröðun á miðssumarsýningunni