Karla- og kvennatölt
Opna karla- og kvennatölt Mána verður haldið í Mánahöllinni Mánagrund föstudaginn 18. mars og hefst keppni kl. 19:00. Boðið verður upp á eftirfarandi flokka:
Konur 3. flokkur – fegurðartölt, riðið upp á vinstri hönd.
Konur 2. flokkur – hægt tölt og fegurðartölt, riðið upp á vinstri hönd.
Konur 2. flokkur – hægt tölt og fegurðartölt, riðið upp á vinstri hönd.
Konur 1. flokkur – hægt tölt, snúið við, hraðabreytingar og fegurðartölt.
Karlar 2. flokkur – hægt tölt og fegurðartölt, riðið upp á vinstri hönd.
Karlar 1. flokkur – hægt tölt, snúið við, hraðabreytingar og fegurðartölt.
Þema keppninnar er Glamúr og glæsileiki.
Aldurtakmark í keppni er 22 ár.
Skráningargjald er kr. 2500 á fyrstu skráningu en 2000 kr. eftir það. Til að skrá þarf að senda tölvupóst á [email protected] með upplýsingum um nafn á knapa og hesti sem og IS númer, tilgreina þarf keppnisflokk og upp á hvora hönd skal riðið (á við um 1. flokk). Skráning telst ekki gild nema greiðsla hafið borist. Síðasti skráningardagur er þriðjudagur 15. mars. Bankaupplýsingar: 0121-26-3873 kt. 690672-0229, vinsamlegast setjið nafn knapa í tilvísun.
Allir keppendur fara sjálfkrafa í lukkupott þar sem m.a. er hægt að vinna folatoll undir Spöl frá Njarðvík og Kjarna frá Þjóðólfshaga, járningu frá Högna Sturlusyni járningameistara, hestavörur frá Byko, gjafabréf á Kaffi DUUS, heyrúllu frá Melabergi og fleira skemmtilegt.
Gómsæt kjúkklingasúpa verður til sölu gegn vægu gjaldi sem og ýmislegt annað góðgæti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson