Karlatölt Spretts

  • 3. maí 2021
  • Fréttir

Sprettara eru oft vel ríðandi líkt og Hafþór Hreiðar

Hið sívinsæla karlatölt Spretts verður haldið miðvikudaginn 12. maí næstkomandi í Samskipahöllinni í Spretti.
Að þessu sinni verður boðið upp á keppni í fjórum flokkum:
T3 Opinn flokkur – gert er ráð fyrir að reynslumiklir knapar skrái sig í þennan flokk.
T3 Opinn flokkur, 1.flokkur – ætlaður þeim sem eru töluvert vanir í keppni.
T7 Opinn flokkur, 2. flokkur – ætlaður þeim sem hafa litla reynslu í keppni, en þó einhverja.
T7 Opinn flokkur, 3. flokkur, byrjendaflokkur – ætlaður þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á keppnisvellinum eða hafa mjög litla reynslu.
ATH!

– Hafi keppandi sigrað í einhverjum styrkleikaflokki karlatöltsins áður skal viðkomandi færast upp um flokk.
– Hafi keppandi komist þrisvar í A-úrslit í einhverjum styrkleikaflokki karlatöltsins áður skal viðkomandi færast upp um flokk.
Keppendur eru hvattir til að sýna metnað við val á keppnisflokki!

Í keppni í T7 eru þrír keppendur saman í holli, sýnt er hægt tölt, snúið við og svo sýnt tölt á frjálsri ferð (fegurðartölt). Í keppni í T3 eru 2-3 keppendur saman í holli, sýnt hægt tölt, snúið við, tölt með hraðabreytingum og svo greitt tölt.

Aðeins er hægt að skrá í gegnum skráningakerfið www.sportfengur.com. Skráning hefst sunnudaginn 2. maí og lýkur sunnudaginn 9. maíl. Skráning pr. hest er 4500 kr og er leyfilegt að skrá fleiri en einn hest.

Boðið verður upp á æfingartíma í Samskipahöllinni laugardaginn 8.maí og sunndaginn 9.maí frá kl.18 – 22

Veglegir vinningar verða í boði í öllum flokkum og verða þeir kynntir betur þegar nær dregur. Hvetjum við alla karla til þess að taka þátt í einu skemmtilegasta karlatölti landsins og hafa gaman saman.
Karlatöltsnefnd Spretts

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar