KEA-mótaröðin hefst í febrúar

  • 20. janúar 2013
  • Fréttir
KEA-mótaröðin hefst í febrúar

KEA mótaröð hestamannafélagsins Léttis í hestaíþróttum, verður haldin í vetur í fimmta sinn, í reiðhöllinni á Akureyri.

„Hefst hún þann 14. febrúar á fjórgangi. Þann 28. febrúar  verður keppt í fimmgangi. Þann 14. mars er komið að töltinu, Fyrstu þrjú keppniskvöldin  fara fram á fimmtudegi. og þann 29. mars sem er föstudagur(föstudagurinn langi) verður keppt í slaktaumatölti, t4 og skeiði, auk þess sem verðlaunaafhending fyrir mótaröðina sem er stigakeppni, fer fram.

​A og B úrslit eru í öllum gangtegundagreinum ef fleiri en 20 skráningar verða í hverri grein. Heimilt er að hver knapi skrái tvö hross til keppni í hverri grein. Skráningargjald er kr. 3000 fyrir hverja skráningu. Aldurstakmark er 16 ára og eldri.

​5 dómarar dæma keppnina. Öll keppniskvöldin er boðið upp á knapafund með dómurum og mótstjórn kl. 18.00 og keppni hefst svo stundvíslega kl 19.00.

​Auglýsing KEA mótaraðarinnar verður send út í næstu viku.

Hestamenn Norðurlandi: Verum með og gerum gott mót enn betra.

​Allar nánari upplýsingar veita Sigfús Ólafur Helgason í síma 846-0768 og Haukur Sigfússon í 861-0311.“

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Létti.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link