Keppni í barnaflokki hafin
Þá er forkeppni í barnaflokki hafin en í forkeppni ríða börnin tölt eða brokk allt að tvo hringi og síðan ríða þau tvo stökkspretti. Gefin er sér einkunn fyrir ásetu og stjórnun en vegur hún helming á móti gangtegundunum.
Forkeppni hefur gengið nokkuð slysalaust fyrir sig en þó hefur þurft að teyma tvo börn af velli eftir stökkið. Engin slys urðu á börnunum en erfitt er að horfa upp á svona uppákomur. Sigurður Ævarsson skrifaði grein um keppni í barnaflokki á Landsmóti sem er mjög áhugaverð lesning. Brot af henni var birt hér en hægt er að lesa hana í heild sinni í nýjasta blaðinu
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH