Keppnisnámskeið
Hestamannafélagið Léttir ætlar að halda keppnisnámskeið með Arnari Bjarka í vetur. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja undirbúa keppnishest sinn vel fyrir komandi keppnistímabil.
Kenndar verða 2 helgar í mánuði fram að páskum og kostar námskeiðið 48,000 kr. en Léttir greiðir 10,000 kr. af námskeiðinu fyrir börn, unglinga og ungmenni. (hægt er að skipta greiðslunum)
Kennt verður á eftirtöldum dögum.
11-12 janúar
25-26 janúar
8-9 febrúar
22-23 febrúar (seinni partinn)
8-9 mars
22-23 mars (seinni partinn)
12-13 apríl
26-27 apríl
2 knapar eru saman í hverjum tíma og mun Arnar Bjarki raða knöpunum í hópa.
Framhaldsnámskeið verður haldið eftir páska en það á eftir að ákveða kennsludaga og fyrirkomulag á því. Arnar Bjarki ætlar að fylgja landsmótförum Léttis alla leið. Arnar mun þjálfa og aðstoða Léttisknapana á mótssvæðinu fyrir mótið.
Skráning er á [email protected] og koma þarf fram nafn og kennitala knapa ásamt netfangi og kennitölu greiðanda námskeiðsins. Skráningu líkur fimmtudaginn 9. Janúar.
Birt með fyrirvara um breytingar.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH