Keppt í gæðingakeppni

  • 15. júlí 2015
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Fákaflug mun fara fram á Vindheimamelum.

Fákaflug 2015 verður haldið á Vindheimamelum dagana 25. og 26.júlí n.k. Keppt verður í A-flokki, B-flokki, ungmennaflokki, unglingaflokki, barnaflokki,       100m, 150m, 250m, gæðingaskeiði og tölti. Sérstök forkeppni, 2-3 inná í einu.

Keppendur skrá sig sjálfir inn á mótið í gegnum á sportfengur.com Skráningum þarf að vera lokið fyrir kl. 22:00 mánudaginn 20.júlí, auk þess sem greiða þarf skráningargjöld fyrir sama tíma. Séu þau ekki greidd eyðast skráningar sjálfkrafa úr kerfinu. Skráningargjald er kr. 4000,- á hverja skráningu í A flokk,B flokk og ungmennaflokk. en í barnaflokk og unglingaflokk  eru kr. 2000. Á hverja skráningu í skeiðgreinum er kr.1500.

Mótið hefst kl. 09:00 laugardaginn 25.júlí .

Dagskrá nánar auglýst síðar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link