Hestaíþróttir á Unglingalandsmóti á Sauðárkróki
Unglingalandsmót 2026 fer fram um verslunarmannahelgina á Sauðárkróki. Krakkar á aldrinum 11 – 18 ára geta skráð sig til leiks. Keppt verður í hestaíþróttum laugardaginn 1.ágúst á félagssvæði Skagfirðings, Sauðárkróki.
Skráning fer fram á unglingalandsmót HÉR en MIKILVÆGT ER AÐ skrá EINNIG í sportfeng, mótshaldari Skagfirðingur til að keppa í hestaíþróttum. Hægt er að hafa samband við Unni Rún á unnursigurpals@gmail.com eða Freydísi Bergs á freydisbergs@gmail.com fyrir nánari upplýsingar.
Keppt verður í
11 – 13 ára Tölt T7.
11 – 13 ára Fjórgangur V5.
14 – 18 ára Tölt T3.
14 – 18 ára Fjórgangur V2.
14 – 18 ára Fimmgangur F2.
Sambandsaðilar UMFÍ styrkja sumir þátttakendur á sínu svæði að hluta eða öllu leyti. Þess vegna er mikilvægt að velja rétt íþróttahérað við skráningu á unglingalandsmót. Einnig verður boðið upp á punktamót í nokkrum greinum (opnum flokki) sama dag. Skráning er opin til 26.júlí.

Glæsilegur hópur Íslendinga á leið á Norðurlandamót í Svíþjóð
Endurtók leikinn tíu árum seinna