„Kerfið er gallað og ætti ÍSÍ að taka þetta upp á sína arma“

  • 22. desember 2023
  • Fréttir

Landslið Íslands á Heimsmeistaramótinu í Hollandi Mynd: Jón Björnsson

Búið er að gefa út hverjir koma til greina í vali á Íþróttamanni ársins og liði ársins.

Tíu ein­stak­ling­ar koma til greina í kjöri Sam­taka íþróttaf­rétta­manna á íþrótta­manni árs­ins 2023 en kjör­inu verður lýst í 68. skipti fimmtu­dags­kvöldið 4. janú­ar. Enginn hestamaður kemur til greina sem íþróttamaður ársins og var hlaut landsliðs Íslands í hestaíþróttum enga tilnefningu þrátt fyrir að hafa unnið til sextán gullverðlauna á Heimsmeistaramótinu í Hollandi í sumar.

„Þetta kom mjög á óvart, sérstaklega að landsliðið skuli ekki hafa komið til greina sem lið ársins eftir þann árangur sem það skilaði í hús. Mér finnst ófagmannlega að þessu staðið. Þetta er lítill hópur boltaáhugafólks sem velur þetta. Kerfið er gallað og ætti ÍSÍ að taka þetta upp á sína arma og velja þetta á faglegan hátt, taka þetta úr höndum íþróttafréttamanna. Þetta val kemur á óvart á hverju einasta ári,“ segir Guðni Halldórsson formaður Landssambands hestamannafélaga í samtali við Eiðfaxa.

Að þessu sinni eru það sex kon­ur og fjór­ir karl­ar sem urðu hlut­skörp­ust í kjör­inu á íþróttamanni ársins, ein frjálsíþróttakona, einn sundmaður, ein sundkona, einn körfuknattleiksmaður, einn handknattleiksmaður, tvær knatt­spyrnu­konur, einn knattspyrnumaður, ein kraftlyftingarkona og ein fimleikakona.

Hér er hægt að sjá hverjir koma til greina sem íþróttamaður ársins, þjálfari ársins og lið ársins.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link