Kiljan áfram á Kvistum
Gæðingurinn Kiljan frá Steinnesi verður áfram á Kvistum í Ölfussi en til stóð að hann færi norður í Eyjarfjörð. Vegna breyttra aðstæðna verður Kiljan áfram á suðurlandi og geta áhugasamir ræktendur haft samband við Benedikt í síma 898-9151.
Áform eru um að Kiljan fari út til eoganda síns í Danmörku í haust og því hver að verða síðastur að nota þennan gæðahest hér á Fróni.
Kiljan var annar í 4 vetra flokki á LM2008 og hlaut svo sinn hæsta 8,78 í aðaleinkunn kynbótadóm 7 vetra gamall og þar af 9,0 fyrir tölt og brokk en 9,5 fyrir skeið, vilja/geðslag og fegurð í reið.
Hann hlaut 1.verðlaun fyrir afkvæmi aðeins 10 vetra gamall en í afkvæmaorðum hans segir meðal annars:
„Afkvæmin hafa fremur góða frambyggingu. Mörg þeirra hafa úrvals bak og lend; bakið er breitt og vöðvafyllt og lendin löng og öflug. Samræmi er yfirleitt gott og afkvæmin eru jafnan hlutfallarétt og fótahá.“
„ Kiljan gefur alhliðageng og skrefmikil hross , Töltið er takthreint og lyftingargott og brokkið skrefmikið. Stökkið er hátt og viljinn drjúgur. Afkvæmin fara að jafnaði vel með góðri fótlyftu. Kiljan gefur prýðilega gerð hross með öfluga yfirlínu og góða alhliða reiðhestskosti. „
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH