Kirkjureið á sunnudag
Hin árlega kirkjureið hestafólks á höfuðborgarsvæðinu verður næsta sunnudag. Riðið verður til Seljakirkju, þar sem tekið verður á móti hestum í trygga rétt og gæslu. Guðsþjónustan hefst kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson stýrir guðsþjónustunni. Brokkkórinn syngur og leiðir söng undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar. Organisti er Tómas Guðni Eggertsson. Allt er það hestafólk sem leggur hönd á plóg. Að lokinni guðsþjónustunni verður kirkjukaffi að vanda.
Lagt verður af stað úr hesthúsahverfunum kl. 12:30, í Víðidal frá skiltinu, í Gustshverfi við reiðskemmuna og Andvarafólk frá Heimsenda. Kirkjureiðin er góður reiðtúr fyrir alla fjölskylduna. Tökum þátt í þeirri ferð að góðu tilefni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH