Kjarnholt 1 hrossaræktarbú Biskupstungna
Hrossaræktarfélag Biskupstungna hélt sína árlegu uppskeruhátíð og sviðaveislu í gær í Friðheimum í Bláskógabyggð. Veislan var velsótt en 50 af 60 félagsmönnum mættu.
Guðlaugur Antonsson, hrossaræktarráðunautur hélt þar tölu og verðlaunaðir voru þeir félagsmenn sem eiga hross sem sköruðu fram úr á árinu.
Hrossaræktarbú ársins 2012 var kjörið Kjarnholt 1 og var Guðnýju Höskuldsdóttur og Magnúsi Einarssyni færður glæsilegur farandgripur sem Sigurlína Kristinsdóttir hannaði. Þrjú hross frá Kjarnholtum 1 voru sýnd fyrir kynbótadóm á árinu, Glaðdís, Kolskeggur og Ópera. Voru þau tvö fyrrnefndu m.a. sýnd á Landsmóti og er Glaðdís hæst dæmda hryssa, ræktuð af félagsmönnum í ár.
Hæst dæmdi stóðhesturinn var hins vegar hin draugmoldótti Svali frá Tjörn og tók hinn níræði ræktandi hans, Guðjón Gunnarsson við verðlaunum fyrir hann. Í viðtali frá því í vor, sagðist Sólon Morthens, tamningamaður, binda miklar vonir við hestinn sem bæði var sýndu fyrir kynbótadóm ásamt því að taka þátt í A-flokki í gæðingakeppni Landsmótsins. Viðtalið við Sólon má nálgast hér.
Ræktunarverðlaun
Hæst dæmdu stóðhestar, ræktaðir af félagsmönnum
1. Guðjón Gunnarsson fyrir Svala frá Tjörn
Draugmoldóttur, fæddur 2006
F: Hnokki frá Fellskoti
M: Spurning frá Bóli
Ræktandi og eigandi: Guðjón Gunnarsson
Sköpulag: 7,96 Hæfileikar: 8,41 Aðaleinkun: 8,23
2. Magnús Einarsson fyrir Kolskegg frá Kjarnholtum 1
Dökkbrúnn, fæddur 2008
F: Kvistur frá Skagaströnd
M: Hera frá Kjarnholtum 1
Ræktandi og eigandi: Magnús Einarsson
Sköpulag: 8,61 Hæfileikar: 7,94 Aðaleinkun: 8,21
3. Kjartan Sveinsson fyrir Seim frá Bræðratungu
Rauðblesóttur, fæddur 2006
F: Baugur frá Víðinesi 2
M: Sif frá Bræðratungu
Ræktandi: Kjartan Sveinsson
Eigandi: Leif Overas
Sköpulag: 8,15 Hæfileikar: 7,93 Aðaleinkun: 8,02
Hæst dæmdu hryssur ræktaðar af félagsmönnum
1. Sigurður Jensson fyrir Glaðdísi frá Kjarnholtum 1
Rauð, fædd 2004
F: Glaður frá Kjarnholtum 1
M: Koldís frá Kjarnholtum 2
Ræktandi: Sigurður Jensson
Eigandi: Sjöfn Sóley Kolbeinsdóttir og Hoop Alexandra
Sköpulag: 8,14 Hæfileikar: 8,46 Aðaleinkun: 8,34
2. María Þórarinsdóttir og Kristinn Antonsson fyrir Spes frá Fellskoti
Bleikálótt stjörnótt, fædd 2005
F: Hnokki frá Fellskoti
M: Snót frá Fellskoti
Ræktandi: María Þórarinsdóttir og Kristinn Antonsson
Eigandi: Fellskotshestar ehf
Sköpulag: 8,09 Hæfileikar: 8,22 Aðaleinkun: 8,17
3. Njörður Jónsson fyrir Óskadís
Grá, fædd 2007
F: Huginn frá Haga
M: Lokkadís frá Brattholti
Ræktandi og eigandi: Njörður Jónsson
Sköpulag: 8,01 Hæfileikar: 8,10 Aðaleinkun: 8,06
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH