Kjörbréf vegna Landsþings LH
Síðasti dagur til að skila inn kjörbréfum vegna 58. Landsþings Landssambands hestamannafélaga er í dag 20. september að er fram kemur í tilkynningu frá LH:
„Kjörbréf eru send til formanna hestamannafélaganna, sem fylla þau út og sjá síðan um að koma þeim til síns héraðssambands og/eða íþróttabandalags til undirskriftar. Kjörbréfin eru númeruð þegar fleiri en eitt hestamannafélag er í hverju íþróttaumdæmi.
Frágangur kjörbréfa verður að vera í samstarfi við Íþróttabandalög/héraðssambönd, formenn geta ekki sjálfir skrifað undir bréfin.
Ef spurningar vakna, hafið samband við skrifstofu LH. Kjörbréf þurfa að berast skrifstofu LH eigi síðar en 20. september.“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH