Norðurlandamót Klara Nydahl og Dagur Norðurlandameistarar ungmenna í fimmgangi

  • 9. ágúst 2026
  • Fréttir

Klara Nydahl Norðurlandameistari í fimmgangi ungmenna á Degi frá Ketilsstöðum. Ljósmynd: Cassandra Laikmets

Úrslitadagur Norðurlandamóts í hestaíþróttum er upp runninn sem að sjálfsögðu er í beinni á EiðfaxaTV en allar upplýsingar, ráslista og dagskrá er hægt að sjá í HorseDay og einnig má sjá dagskrá dagsins hér.

Úrslit í ungmennaflokki í fimmgangi voru spennandi og knapar þar vel hestaðir. Mjótt var á munum á öllum atriðum og baráttan um sigur spennandi. Að loknum öllum atriðum voru þær Klara Nydahl á Degi frá Ketilsstöðum og Palma Sandlau Jacobsen á Búa frá Húsavík jafnar með 6,76 og þurfti því sætaröðun dómara til að skera úr um sigur og þar varð Klara hlutskarpari og því Norðurlandameistari. Þórgunnur Þórarinsdóttir var skammt undan á Tófu Þorvardóttur með 6,69 í einkunn og silfur því niðurstaðan fyrir hana. Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á Engli frá Ytra-Bægisá varð fimmta með 6,33 í einkunn.

Sæti Keppandi Þjóðerni Heildareinkunn
1 Klara Nydahl / Dagur frá Ketilsstöðum Svíþjóð 6,76
2 Palma Sandlau Jacobsen / Búi frá Húsavík Danmörk 6,76
3 Þórgunnur Þórarinsdóttir / Tófa Þorvardóttir från Stall Vitavillan Ísland 6,69
4 Filippa Gram / Kristall frá Skagaströnd Danmörk 6,40
5 Kristín Eir Hauksdóttir Holaker / Engill frá Ytri-Bægisá I Ísland 6,33
6 Rebecca Hesselbjerg Taulborg / Tindra fra Kirstineholm Danmörk 5,55

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link