Klara Solberg Norðurlandameistari í tölti ungmenna
Efstu þrjú á palli í tölti ungmenna. Ljósmynd: Anja Mogensen
A-úrslitum í tölti ungmenna er lokið en Ísland átti þar einn fulltrúa, Ragnar Snæ Viðarsson á Gimsteini frá Íbishóli sem varð í öðru sæti með einkunnina 7.06 jafn Rakel Brattalid Tindskard frá Færeyjum á Silas vom Forstwald.
Sigurvegari í þeirri grein og Norðurlandameistari árið 2024 er því Klara Solberg á Sabrínu frá Fornusöndum með 7,22 í einkunn. Sabrína er undan Arði frá Brautarholti og Gná frá Forsæti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH