Klettssynir í klandri á Landsmóti
Velgengni í kynbótadómi þarf ekki að vera ávísun á velgengni í gæðingakeppni. Topp stóðhestar með hæstu einkunnir fyrir vilja og geðslag hafa sýnt mótþróa í gæðingakeppni í úrtökum í vor og í gæðingakeppni á Landsmótinu.
Í forkeppni í A flokki nú á LM2012 gerði Kiljan frá Steinnesi ógilda sýningu með því að sýna mótþróta þegar hann stökk yfir band sem afmarkar völlin [í enda hans] og hljóp með knapann upp í brekku. Hann var einnig greinilega ósáttur við að leggja í skeiðsprettinn þegar knapinn, Þorvaldur Árni Þorvaldsson, hafði náð hestinum inn á völlinn aftur. Kiljan var efstur í elsta flokki stóðhesta á LM2011 í fyrra með 8,78 í aðaleinkunn, þar af 9,5 fyrir vilja og geðslag. Hann var annar í 4 vetra flokki á LM2008 með 8,39 í aðaleinkunn. Hann er undan Kletti frá Hvammi og Kilju frá Steinnesi, Kolfinnsdóttur frá Kjarnholtum.
Í milliriðli A flokks á LM2012 var annar Klettssonur, Seiður frá Flugumýri II, í klandri. Hann sýndi verulegan mótþróa þegar knapinn Mette Mannseth ætlaði að hægja hann niður af stökki og mátti engu muna að hann gerði ógilt með því að fara of langt eftir langhliðinni. Mette þurfti að taka á öllu sínu til að stöðva hestinn. Seiður var efstur í 4 vetra flokki stóðhesta á LM2008 og setti þá heimsmet í aðaleinkunn, 8,42. Hann var í öðru sæti í elsta flokki á eftir Kiljan bróður sínum á LM2011 með 8,67 í aðaleinkunn, þar af 9,0 fyrir vilja og geðslag. Seiður er undan Sif frá Flugumýri II, Kormáksdóttur frá Flugumýri II.
Því má svo bæta við að Tenór frá Túnsbergi, sem er þó ekki sonur Kletts heldur sonur Garra frá Reykjavík, sem er einn af hæst dæmdu stóðhestum í heimi, fékk 8,61 í aðaleinkunn í kynbótadómi 5 vetra, þar af 9,15 fyrir kosti, og 9,5 fyrir vilja og geðslag, gerði ógilt í A flokki á LM2011 þegar hann stökk út af beinu brautinni í upphafi skeiðspretts með þeim afleiðingum að knapinn, Erlingur Erlingsson, féll af baki. Hann gerði síðan aftur ógilt í úrtöku Geysis í vor þegar hann rauk stjórnlaus, eða stjórnlítill, með knapa sinn Hinrik Bragason inni á vellinum.
Eðlilegt er að menn spyrji hvort ekki sé einhver „pikklis í systeminu“, eins og maðurin sagði. Annað hvort í kynbótadómunum eða gæðingakeppninni! Alla vega er ljóst að annað hvort láta hátt dæmdir stóðhestar keppni í A flokki fara í taugarnar á sér, eða þeir eru búnir að fá nóg eftir síendurteknar kynbótasýningar í æsku. Og/eða að eitthvað sé bogið við matið á vilja og geðslagi í kynbótadómunum, — eins og undirritaður hefur reyndar ýjað að oftar en einu sinni og oftar en tvisvar!
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH