Knapar ársins hjá Létti verðlaunaðir
Viðar Bragason og Fanndís Viðarsdóttir voru verðlaunuð hjá hestamannafélagi sínu, Létti, um helgina.
Þetta er annað árið í röð sem Viðar er kjörinn íþróttamaður Léttis. Hann hefur á undanförnum árum verið að stimpla sig inn sem einn af bestu knöpum landsins og hefur á liðnum árum landað stórum sigrum á hinum ýmsu hrossum, flestum úr eigin ræktun, að er fram kemur í frétt Léttis.
„Árið 2014 var þar engin undantekning, þó segja megi að hæst hafi frægðarsól Viðars skynið árið 2014 er hann náði frábærum árangri á gæðingnum Væntingu frá Hrafnagili. Sigur í B flokki gæðinga í Gæðingakeppni Léttis sem og góður árangur í töltkeppni Landsmóts hestamanna á árinu er eftirminnilegur og það er alveg ljóst að við eigum eftir að sjá meira til þeirra tveggja saman á næstu misserum og árum.Auk þess hefur Viðar náð mjög svo góðum árangri á öðrum hrossum á árinu 2014, sem eins og áður sagði koma flest úr ræktun þeirra hjóna á Björgum1.“
Fanndís var kjörin efnilegasti knapi í ungmennaflokki. “ Fanndís er, þrátt fyrir ungan aldur komin með alveg ótrúlegt árangursskor á hestamannamótum stórum sem smáum á liðnum árum og hefur unnið marga glæsta sigra á smærri sem stærri mótum. Á árinu 2014 var þar engin undantekning þótt segja megi að stóra sólin hafi skynið á Fanndísi á Landsmótinu í sumar þar sem hún fór alla leið í úrslit í ungmennaflokki á hryssunni Björgu frá Björgum, og endaði að lokum í 6 sæti. Frábær árangur það.
Fanndís náði auk þess mjög góðum árangri á öðrum þeim mótum er hún tók þátt í og er hún svo sannarlega góð fyrirmynd ungu kynslóðarinnar í Létti sem á eftir kemur,“ segir í frétt frá hestamannafélagin Létti.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH