Knapaskipti
7. janúar 2016 Þar sem tveir knapar, þau Guðmundur Björgvinsson og Eva Dyröy hafa sagt sig frá í liði Top Reiter / Sólningar, barst stjórn MD beiðni frá liðseiganda liðsins um að fylla skarð þeirra og bæta við tveimur nýjum knöpum í liðið. Stjórn hefur metið reglur deildarinnar og fengið utanaðkomandi lögfræðiálit og komist að þeirri niðurstöðu að samþykkja beiðni liðsins. Stjórn hefur samþykkt knapana Jóhann R. Skúlason og Matthías Leo Matthíasson sem nýja knapa liðsins. Bjóðum við þá velkomna og óskum þeim góðs gengis í deildinni í vetur. Garðar Hólm, formaður
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Áhugamannadeild Norðurlands áfram á EiðfaxaTV