Kolbrún Katla Íslandsmeistari í fjórgangi unglinga
Fyrstu úrslitum dagsins á Íslandsmóti barna og unglinga er nú lokið en það voru knapar í unglingaflokki sem riðu á vaðið þegar keppt var í fjórgangi.
Kolbrún Katla Halldórsdóttir stóð uppi sem sigurvegari í fjórgangi á hryssu sinni Sigurrós frá Söðulsholti en þær Signý Sól Snorradóttir og Glódís Líf Gunnarsdóttir urðu í 2-3 sæti en þær komu alla leið úr B-úrslitum frá því í gær.
Framundan í dag eru úrslit í hinum ýmsu flokkum og fylgist Eiðfaxi með því sem fram fer.
Niðurstöður
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn |
| 1 | Kolbrún Katla Halldórsdóttir / Sigurrós frá Söðulsholti | 6,80 |
| 2-3 | Signý Sól Snorradóttir / Rektor frá Melabergi | 6,77 |
| 2-3 | Glódís Líf Gunnarsdóttir / Fífill frá Feti | 6,77 |
| 4 | Matthías Sigurðsson / Æsa frá Norður-Reykjum I | 6,63 |
| 5-6 | Hulda María Sveinbjörnsdóttir / Garpur frá Skúfslæk | 6,47 |
| 5-6 | Benedikt Ólafsson / Bikar frá Ólafshaga | 6,47 |
| 7 | Védís Huld Sigurðardóttir / Hrafnfaxi frá Skeggsstöðum | 5,53 |
Styttu haustið með EiðfaxaTV