Nítján knapar skipa landsliðið í hestaíþróttum sem keppir fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótinu í Austurríki sem hefst 1. ágúst n.k.
Landssamband hestamannafélaga er afar stolt af liðinu sem hefur á að skipa reyndum og sterkum knöpum og hestum og væntir mikils af því á keppnisvöllunum í St. Radegund í Austurríki í ágúst, að er fram kemur í tilkynningu frá LH.
Landsliðsstjórarnir Einar Öder Magnússon og Hafliði Halldórsson kynntu fullskipað lið í fyrsta sinn í verslun Líflands í dag. Fram kom í máli landsliðsstjóranna að þeir væru afar ánægðir með valið, enda byggir liðið á keppnisreyndum knöpum og hrossum sem hafa skipað sér meðal bestu keppnishrossa að undanförnu.
Liðsstjórarnir völdu nýkrýndan Íslandsmeistara í 250 metra skeiði, Elvar Einarsson og Kóng frá Lækjarmóti nokkuð óvænt inn í liðið, en í læknisskoðun í gær varð ljóst að Gammur frá Skíðbakka III væri örlítið meiddur á fæti og var því ákveðið að hann myndi ekki fara út með knapa sínum Teit Árnasyni.
Liðsstjórarnir völdu hins vegar systur Teits, Agnesi Heklu og gæðinginn Vigni frá Selfossi og Arnar Bjarka Sigurðarson og Rösk frá Sunnuhvoli til að keppa í ungmennaflokki ásamt Heklu Katharínu Kristinsdóttur og Gautrek frá Torfastöðum og sagði Hafliði að landsliðsstjórarnir væru afar montnir að hafa fengið í liðið svo sterk ungmenni.
Þá völdu landsliðsstjórarnir Hauk Tryggvason og Baltasar vom Freyelhof í liðið en þeir voru einnig hluti af liðinu árið 2009. Þá munu nýkrýndir Íslandsmeistarar í samanlögðum fjórgangsgreinum, Hinrik Bragason og Sigur frá Hólabaki, mæta til leiks í tölti og fjórgangi.
Landslið Íslands er þannig skipað:
Íþróttaknapar
Heimsmeistarar frá 2009:
Jóhann Rúnar Skúlason og Hnokki frá Fellskoti – T1 og V1
Bergþór Eggertsson og Lotus van Aldenghoor – 250m, 100m og gæð.sk.
Rúna Einarsdóttir-Zingsheim og Freyr von Nordsternhof – T2, F1, 100m og gæð.sk.
Fullorðnir valdir eftir lykli Landsliðsnefndar LH:
Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi – T1 og V1
Eyjólfur Þorsteinsson og Ósk frá Þingnesi – T2 og V1
Árni Björn Pálsson og Aris frá Akureyri – T1, F1, 250m, 100m og gæð.sk.
Hulda Gústafsdóttir og Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu – T1 og V1
Ungmenni valin eftir lykli Landsliðsnefndar LH:
Hekla Katharina Kristinsdóttir og Gautrekur frá Torfastöðum – T1 og V1
Fullorðnir liðstjóravaldir:
Haukur Tryggvason og Baltasar vom Freyelhof – T1, F1, 100m og gæð.sk.
Elvar Einarsson og Kóngur frá Lækjarmóti – T1, F1, P1, P2 og PP2.
Hinrik Bragason og Sigur frá Hólabaki – T1 og V1
Ungmenni liðstjóravalin:
Agnes Hekla Árnadóttir og Vignir frá Selfossi – T1 og V1
Arnar Bjarki Sigurðarson og Röskur frá Sunnuhvoli – T1 og V1
Kynbótaknapar og hross
Vignir Jónasson og Gjöf frá Magnússkógum – 7v og eldri hryssur
Erlingur Erlingsson og Rauðhetta frá Kommu – 6 v hryssur
Helga Una Björnsdóttir og Smá frá Þúfu – 5v hryssur
Jakob Svavar Sigurðsson og Glotti frá Sveinatungu – 7v og eldri stóðhestar
Sigurður Matthíasson og Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu – 6v stóðhestar
Sigurður Óli Kristinsson og Feykir frá Háholti – 5v stóðhestar
Landssamband hestamannafélaga og íslenska landsliðið þakkar styrktaraðilum sínum kærlega fyrir stuðninginn en þeir eru: SAMSKIP, LÍFLAND, ICELANDAIR CARGO, VÍS, KERCKHAERT, N1, BÍLALEIGA AKUREYRAR/EUROPCAR, VIRKON-S og 66°NORÐUR.
Hestarnir munu fljúga út næstkomandi sunnudag og knapar munu svo mæta til Austurríkis fimmtudagsmorguninn 28. júlí.