Komma ræktunarbú ársins hjá HEÞ
Á haustfundi Hrossaræktarsamtaka Eyfirðinga og Þingeyinga sem haldinn var í kvöld 12. nóv. var hrossaræktarbúið Komma í Eyjafjaðrarsveit kosið ræktunarbú ársins. Alls voru tilnefnd fimm bú og auk Kommu voru það Litla-Brekka, Torfunes, Grund ll og Efri- Rauðalækur. Fjögur hross frá Kommu voru sýnd í kynbótadómi á árinu og hlutu öll 1.verðlaun og meðaltalseinkunin var 8,16. Hæst dæmdu hross í öllum flokkum fengu viðurkenningu og voru þau eftirfarandi.
4. vetra stóðhestar: Þorri frá Möðrufelli 8,11
5. vetra stóðhestar : Grunnur frá Grund ll 8,47
6. vetra stóðhestar: Kiljan frá Árgerði 8,30
7. vetra og eldri : Kaspar frá Kommu 8,40
4. vetra hryssur : Rauðhetta frá Kommu 8,11
5. vetra hryssur : Krækja frá Efri-Rauðalæk 8,30
6.vetra hryssur : Elding frá Torfunesi 8,18
7. vetra og eldri: Myrkva frá Torfunesi 8,47
Eiðfaxi óskar Vilberg og fjölskyldu í Kommu til hamingju með árangurinn.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH