Meistaradeild KS í hestaíþróttum Konráð og Guðmar sigurvegarar dagsins á Króknum

  • 12. apríl 2026
  • Fréttir

Alvöru lokasprettur hjá þeim Konráði Val á Kjarki og Agnari Þór á Kvisti Myndir: Freydís Bergsdóttir

Skeiðmóti Meistaradeildar KS í hestaíþróttum er lokið.

Byrjað var á keppni í gæðingaskeiði og síðan farið í 150 m. skeiðið. Guðmar Freyr Magnússon og Gljásteinn frá Íbishóli áttu bestu sprettina í dag í gæðingaskeiðinu og unnu með 7,96 í einkunn. Daníel Gunnarsson varð í öðru sæti á Strák frá Miðsitju með 7,79 og í þriðja sæti með sömu einkunn varð afmælisbarn dagsins, Bjarni Jónasson á Eðalsteini frá Litlu-Brekku.

Guðmar Freyr og Gljásteinn unnu gæðingaskeiðið

Það voru flottir tímar í 150 m. skeiðinu og réðust úrslit í æsi spennandi lokaspretti á milli þeirra Agnar Þórs Magnússonar á Kvisti frá Kommu og Konráðs Vals Sveinssonar á Kjarki frá Árbæjarhjaáleigu II en Agnar var með betri tímann eftir fyrri umferðina. Bættu þeir báðir tímann sinni í seinni sprettinum og fór svo að Konráð og Kjarkur voru með betri tímann, 13,80 sek., og lönduðu gulli og silfrið fór til Agnars og Kvists sem voru með tímann 13,88 sek.

Það breyttist lítið á toppnum í einstaklingskeppninni en eini knapinn af þeim efstu fimm sem náðu sér í stig í dag var Mette Mannseth sem nældi sér í 2 stig í 150 m. skeiðinu. Náði með því að saxa aðeins á forskot Veru Schneiderchen sem situr enn á toppi einstaklingskeppninnar með 30 stig. Mette er í öðru sæti með 27 stig, Þórarinn Eymundsson í því þriðja með 21 stig, Þórey Þula Helgadóttir í fjórða með 20 stig.

Lið Þúfna vann báða liðaplattanna á skeiðmótinu. Knapar f.v. Daníel Gunnarsson, Mette Mannseth og Guðmar Freyr Magnússon.

 

Þúfur unnu báða liðaplattana í dag og eru efst í liðakeppninni með 318 stig. Rétt á eftir er lið Hrímnis/Hestkletts með 310 stig og í þriðja er lið Hofstorfunnar/550 með 266,5 stig.

Gæðingaskeið PP1

Sæti Knapi Hross Einkunn
1 Guðmar Freyr Magnússon Gljásteinn frá Íbishóli 7,96
2 Daníel Gunnarsson Strákur frá Miðsitju 7,79
3 Bjarni Jónasson Eðalsteinn frá Litlu-Brekku 7,79
4 Björg Ingólfsdóttir Kjuði frá Dýrfinnustöðum 7,67
5 Lilja Dögg Ágústsdóttir Stanley frá Hlemmiskeiði 3 7,58
6 Matthías Sigurðsson Gammur frá Efri-Þverá 7,29
7-8 Björgvin Helgason Karlsberg frá Kommu 7,25
7-8 Kristján Árni Birgisson Súla frá Kanastöðum 7,25
9 Elvar Logi Friðriksson Hetja frá Bessastöðum 6,71
10 Atli Freyr Maríönnuson Elmar frá Staðarhofi 6,50
11 Herdís Björg Jóhannsdóttir Urla frá Pulu 6,25
12 Þorsteinn Björn Einarsson Óskar frá Eystri-Sólheimum 5,88
13 Emma Thorlacius Númi frá Hólum 5,88
14 Konráð Valur Sveinsson Kastor frá Garðshorni á Þelamörk 5,71
15 Julian Veith Hátíð frá Ísalæk 5,67
16 Sigurður Steingrímsson Gjafar frá Hrafnsstöðum 5,54
17 Elvar Einarsson Snælda frá Syðra-Skörðugili 5,46
18 Egill Már Þórsson Sóldögg frá Króksstöðum 5,08
19 Mette Mannseth Töfri frá Þúfum 4,79
20 Magnús Bragi Magnússon Keilir frá Kjarnholtum I 4,75
21 Vignir Sigurðsson Eyfjörð frá Litlu-Brekku 4,21
22 Þórarinn Eymundsson Lukka frá Breiðholti, Gbr. 3,83
23 Þorsteinn Björnsson Mörk frá Hólum 3,58
24 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kári frá Morastöðum 3,50
25 Þórey Þula Helgadóttir Sólon frá Völlum 3,46
26 Agnar Þór Magnússon Fjóla frá Garðshorni á Þelamörk 3,38
27 Herjólfur Hrafn Stefánsson Álmur frá Reykjavöllum 2,88

Skeið 150m P3

Sæti Knapi Hross Tími
1 Konráð Valur Sveinsson Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II 13,80
2 Agnar Þór Magnússon Kvistur frá Kommu 13,88
3 Ívar Örn Guðjónsson Buska frá Sauðárkróki 14,29
4 Guðrún Lilja Rúnarsdóttir Kári frá Morastöðum 14,77
5 Vignir Sigurðsson Sigur frá Bessastöðum 14,84
6 Matthías Sigurðsson Þrymur frá Bergholti 14,90
7 Guðmar Freyr Magnússon Spölur frá Efri-Þverá 15,07
8 Daníel Gunnarsson Elding frá Hofsstaðaseli 15,09
9 Mette Mannseth Vívaldi frá Torfunesi 15,23
10 Auður Karen Auðbjörnsdóttir Spes frá Geitagerði 15,27
11 Kristján Árni Birgisson Röst frá Hólum 15,28
12 Bjarni Jónasson Eðalsteinn frá Litlu-Brekku 15,92
13 Þórey Þula Helgadóttir Hrina frá Hólum 16,00
14 Björgvin Helgason Karlsberg frá Kommu 16,02
15 Herjólfur Hrafn Stefánsson Rjúpa frá Hólum 16,30
16 Harpa Dögg Bergmann Heiðarsdóttir Gosi frá Staðartungu 16,40
17 Elvar Einarsson Gáski frá Varmalandi 16,55
18 Þorsteinn Björn Einarsson Gerpla frá Hofi á Höfðaströnd 16,63
19 Elvar Logi Friðriksson Kuldi frá Skipaskaga 17,01
20 Emma Thorlacius Númi frá Hólum 17,22
21 Unnur Sigurpálsdóttir Elva frá Miðsitju 17,80
22-28 Þórarinn Eymundsson Sviðrir frá Reykjavík 0,00
22-28 Vera Evi Schneiderchen Sturla frá Bræðratungu 0,00
22-28 Þorsteinn Björnsson Taumur frá Hólum 0,00
22-28 Sigurður Heiðar Birgisson Tinna frá Ríp 0,00
22-28 Björg Ingólfsdóttir Grímnir frá Þóroddsstöðum 0,00
22-28 Atli Freyr Maríönnuson Rún frá Staðarhofi 0,00
22-28 Sigurður Steingrímsson Gjafar frá Hrafnsstöðum 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link