Konráð og Kjarkur efstir á stöðulista í 150 metra skeiði
Þátttökurétt í tölti og kappreiðum á Landsmóti ráðast af stöðulistum löglegra móta sem lokið var fyrir 17. júní 2024.
Keppni í 150 metra skeiði er ætið skemmtileg og öll þau pör sem eiga þátttökurétt í þeirri grein fóru vegalengdina á vel undir 15 sekúndum. Það ber vitni þess að mikil gróska er í skeiðgreinum. Fyrir helgi voru stöðulistar birtir og þau pör tilgreind sem náð hafa inn í þær fjölmörgu greinar sem keppt er í á landsmóti í skeið- og íþróttagreinum.
Fljótastir í vor voru þeir félagar Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu er þeir fóru á 13,62 sekúndum sem er Íslandsmet í þeirri grein en ekki hafa borist staðfestingar á því meti. Með annan besta tíma fyrir Landsmót er Árni Björn Pálsson og Þokki frá Varmalandi á tímanum 14,13 sekúndum í því þriðja er Gústaf Ásgeir Hinriksson á Sjóði frá Þóreyjarnúpi á 14,18 sekúndum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH