Meistaradeild KS í hestaíþróttum Konráð Valur sigraði 150 metra skeiðið

  • 20. apríl 2023
  • Fréttir
KS deildin
150metra skeiði í Meistaradeild KS er lokið og fór það svo að Konráð Valur og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu sigruðu á tímanum 14.40 sekúndum! Í öðru sæti var Agnar Þór Magnússon með Tangó frá Litla-Garði (15.01), í þriðja sæti Védís Huld Sigurðardóttir & Vorsól frá Stóra-Vatnsskarði (15.05). Í fjórða sæti var Gestur Júlíusson og Sigur frá Sámsatöðum á tímanum 15.51 og í því fimmta Sigurður Heiðar Birgisson með Hrinu frá Hólum á tímanum 15.65 💥
Dýraspítalinn Lögmannshlíð vann einnig liðaplattann í 150m skeiði en keppendur þar voru Agnar Þór, Gestur Júl & villikötturinn Konráð Valur!

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link