„Konungur fjallanna“ er ný íslensk heimildamynd

  • 8. september 2023
  • Sjónvarp Fréttir
Konungur fjallanna verður sýnd á Selfossi og í Laugarásbíói

Ný íslensk heimildamynd, Konungur fjallanna, verður frumsýnd sunnudaginn 10. september. Almennar bíósýningar hefjast 12. september í Laugarásbíói og Bíóhúsinu Selfossi.

Myndin er ævintýralegt ferðalag með fjallkónginum Kristni Guðnasyni og gangnamönnum í leitum á Landmannaafrétti. Konungur fjallanna gefur raunsanna mynd af leitum og samspili manna, dýra og náttúru með augum fjallkóngsins.

Á hverju hausti halda bændur úr Holta- og Landsveit til fjalla í þeim tilgangi að smala saman fé sem gengið hefur frjálst á fjöllum sumarlangt. Smalað er á víðfeðmu svæði sem er jafn hrjóstrugt og það er fagurt. Baráttan við fjöllin og féð er háð á hverju ári. Markmiðið er bara eitt: Að koma fénu til byggða heilu og höldnu. Sauðfjárbændur eru sjálfstætt fólk en fyrir þessa vikuferð er valinn fjallkóngur til að stjórna leiðangrinum. Í stöðu fjallkóngs eru valdir menn með leiðtogahæfileika sem eru úrræðagóðir og svo staðkunnugir að þeir geta sagt ókunnugum til um leiðir hvar sem er á afréttinum. Kristinn Guðnason hefur gegnt þessu hlutverki í rúma fjóra áratugi.
Konungur fjallanna er afrakstur nokkurra ára vinnu þar sem gangnamönnum var fylgt eftir um króka og kima afréttarins í þremur leitum.

Framleiðendur myndarinnar eru Áslaug Pálsdóttir og Guðrún Hergils Valdimarsdóttir en saman reka þær framleiðslufyrirtækið Hekla Films. Arnar Þórisson fer með leikstjórn og stjórn kvikmyndatöku. Klippingu annaðist Jakob Halldórsson. Úlfur Eldjárn samdi tónlist fyrir myndina. Hljóð og hljóðhönnun var í höndum Péturs Einarssonar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar