Kór efstur á stöðulista í B flokki
Kór frá Skálakoti og Jakob Svavar á Landsmóti 2024 Mynd: Kolla Gr.
Það styttist í að Landsmót hestamanna hefjist á Hólum en keppni hefst á sérstakri forkeppni í barnaflokki á sunnudeginum 5. júlí. Keppni í B flokki gæðinga hefst eftir hádegi á mánudeginum, 6. júlí. Keppni í B-flokki gæðinga á Landsmóti er einn af hápunktum mótsins og þar reynir á taktfestu, rými og glæsileika gæðingsins.
Meteinkunn inn á Landsmót
Efstur á stöðulista í B flokki inn á mótið eru Kór frá Skálakoti og Jakob Svavar Sigurðsson en þeir eru engir nýgræðingar í greininni og verða teljast sigurstranglegir. Þeir unnu B flokkinn á Fjórðungsmótinu í fyrra og voru í úrslitum á síðasta Landsmóti. Það eru 10 ár síðan Jakob vann B flokk á Landsmóti og var það einmitt á Hólum spennandi verður að sjá hvort hann endurtaki leikinn.
Hvarmur frá Brautarholti en er annar inn á mótið með knapa sínum Hönnu Rún Ingibergsdóttur en þau hafa vakið verðskuldaða athygli á keppnisbrautinni það sem af er sumri. Þriðji er Útherji frá Blesastöðum 1A, knapi Jóhanna Margrét Snorradóttir, en þau enduðu í 3 sæti á Landsmóti 2024.
Það verður nóg að gera hjá Adrían á Landsmótinu en hann kemur fjórði inn á mótið í B flokki og mun taka á móti afkvæmaverðlaunum á mótinu. Knapi á Adrían er Glódís Rún Sigurðardóttir og keppa þau fyrir hestamannafélagið Sprett. Fimmti inn á mótið er Pensill frá Hvolsvelli, knapi Elvar Þormarsson, þeir keppa fyrir hestamannafélagið Geysi og unnu B úrslitin á síðasta Landsmóti og enduðu í 4. sæti í A úrslitunum.
Fyrrum Landsmótssigurvegari keppir í öðrum flokki
Það var Safír frá Mosfellsbæ og knapi hans Sigurður Vignir Matthíasson sem unnu B flokkinn á síðasta Landsmóti. Safír verður í nýju hlutverki á mótinu en dóttir Sigurðar, Helga Rún, mun keppa á Safír í barnaflokki fyrir hestamannafélagið Fák. Safír mun einnig taka á móti fyrstu verðlaunum fyrir afkvæmi á mótinu. Sigurður Vignir er skráður með eitt hross í B flokknum og á fjórum í A flokki.
Landsmót 2026 í beinni á EiðfaxaTV
Landsmót hestamanna verður sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV. Með því að velja ársáskrift að EiðfaxaTV slá áskrifendur tvær flugur í einu höggi: Þeir fá tæpa 4 mánuði frítt, miðað við mánaðaráskrift, og fá aðgang að Landsmóti hestamanna innifalið í pakkanum. Vert er að vekja athygli á því að Landsmótið verður ekki innifalið í hefðbundinni mánaðaráskrift og því mikill fjárhagslegur ávinningur fólgin í því að næla sér í ársmiðann strax.
Stöðulisti í B flokki gæðinga
Hér fyrir neðan er stöðulistinn í B flokki gæðinga, 30 efstu hestar.
| 1 | Jakob Svavar Sigurðsson | IS2017184162 Kór frá Skálakoti | 8,99 |
| 2 | Hanna Rún Ingibergsdóttir | IS2018137637 Hvarmur frá Brautarholti | 8,84 |
| 3 | Jóhanna Margrét Snorradóttir | IS2014187804 Útherji frá Blesastöðum 1A | 8,82 |
| 4 | Glódís Rún Sigurðardóttir | IS2013164067 Adrían frá Garðshorni á Þelamörk | 8,82 |
| 5 | Elvar Þormarsson | IS2015184975 Pensill frá Hvolsvelli | 8,80 |
| 6 | Guðmunda Ellen Sigurðardóttir | IS2014181422 Flaumur frá Fákshólum | 8,79 |
| 7 | Mette Mannseth | IS2015158162 Hannibal frá Þúfum | 8,78 |
| 8 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | IS2017281816 Náttrún frá Þjóðólfshaga 1 | 8,77 |
| 9 | Teitur Árnason | IS2015282365 Auðlind frá Þjórsárbakka | 8,76 |
| 10 | Jón Herkovic | IS2015258560 Tesla frá Ásgarði vestri | 8,75 |
| 11 | Helgi Þór Guðjónsson | IS2014187695 Þröstur frá Kolsholti 2 | 8,74 |
| 12 | Hans Þór Hilmarsson | IS2019284869 Dögg frá Hjarðartúni | 8,73 |
| 13 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | IS2017158627 Fróði frá Flugumýri | 8,73 |
| 14 | Skapti Steinbjörnsson | IS2018157341 Kulur frá Hafsteinsstöðum | 8,73 |
| 15 | Ólafur Þórisson | IS2018184620 Fáfnir frá Miðkoti | 8,72 |
| 16 | Signý Sól Snorradóttir | IS2018165100 Bárður frá Litla-Dal | 8,72 |
| 17 | Bjarni Jónasson | IS2018135715 Hrafn frá Oddsstöðum I | 8,71 |
| 18 | Siguroddur Pétursson | IS2014237860 Sól frá Söðulsholti | 8,71 |
| 19 | Eyrún Ýr Pálsdóttir | IS2017158319 Jarl frá Skúfsstöðum | 8,71 |
| 20 | Snorri Dal | IS2016125727 Sæljómi frá Stafholti | 8,71 |
| 21 | Sigurður Baldur Ríkharðsson | IS2019180326 Fálki frá Traðarlandi | 8,70 |
| 22 | Katla Sif Snorradóttir | IS2017287977 Gleði frá Efri-Brúnavöllum I | 8,69 |
| 23 | Sara Sigurbjörnsdóttir | IS2016180376 Skálkur frá Koltursey | 8,69 |
| 24 | Þórarinn Eymundsson | IS2018157802 Náttfari frá Varmalæk | 8,69 |
| 25 | Birgitta Bjarnadóttir | IS2018187841 Kór frá Kálfhóli 2 | 8,68 |
| 26 | Þorgeir Ólafsson | IS2018182122 Steinn frá Stíghúsi | 8,67 |
| 27 | Barbara Wenzl | IS2019158592 Loftur frá Kálfsstöðum | 8,67 |
| 28 | Hinrik Bragason | IS2017156275 Hugur frá Hólabaki | 8,67 |
| 29 | Ylfa Guðrún Svafarsdóttir | IS2016101056 Þór frá Hekluflötum | 8,66 |
| 30 | Teitur Árnason | IS2013181608 Hylur frá Flagbjarnarholti | 8,66 |
| 31 | Benjamín Sandur Ingólfsson | IS2017187460 Áki frá Hurðarbaki | 8,66 |
Kór efstur á stöðulista í B flokki
Guðmar Hólm þrefaldur Íslandsmeistari
Tinni slær heimsmet