Kosningar til stjórnar LH

  • 20. október 2012
  • Fréttir
Kosningar til stjórnar LH

Þingfulltrúar á Landsþingi kusu fulltrúa í stjórn og varastjórnar LH til næstu tveggja ára.

Sitjandi formaður LH, Haraldur Þórarinsson var einn í framboði til formanns og var endurkjörin. Aðalsstjórn var einnig sjálfkjörin en í henni sitja:

  • Þorvarður Helgason Fáki
  • Oddur Hafsteinsson Sleipni
  • Andrea Þorvaldsdóttir Létti
  • Sigurður Ævarsson Sörla
  • Erla Guðný Gylfadóttir Andvara
  • Sigrún Þórðardóttir Þyt

Tólf framboð bárust til varastjórn en fimm frambjóðendur fengu kjör. Þau voru:

  • Sigurður Örn Ágústsson Neista
  • Stefán G. Ármannsson Dreyra
  • Helga B. Helgadóttir Fáki
  • Maríanna Gunnarsdóttir Fáki
  • Bryndís Björk Hólmarsdóttir Hornfirðing

Haraldur Guðfinnsson, Sörla og Sigurður Guðmundsson, Herði voru kosnir skoðunarmenn til næstu tveggja ára að tillögu kjörnefndar LH. Til vara er Sigurður Ragnarsson Faxa. Kjörnefnd lagði ennfremur til að kjöri fulltrúa á ÍSÍ-þing verði vísað til stjórnar LH.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link