Krakkar í fremstu röð í Uppsveitadeild æskunnar
Á laugardag fór fram fyrsta mótið í Uppsveitadeild Æskunnar í Reiðhöllinni á Flúðum. Keppt er í einstaklings- og liðakeppnum þar sem hestamannafélögin Smári, Logi og Trausti etja kappi. Keppt var í smala og voru þrjátíu börn og unglingar skráðir til leiks. Ekki voru þau síðri tilþrifin í dag en í Uppsveitadeildinni á föstudagskvöldið og stóðu krakkarnir sig afburðavel, að sögn aðstandanda keppninnar. “Reiðmennska var til fyrirmyndar og allir gerðu sitt besta í harðri keppni og veit þetta á gott varðandi framhaldið í deildinni,” segir á heimasíðu hestamannafélagsins Smára.
Næsta mót er laugardaginn 5 mars næstkomandi og þá verður keppt í fjórgangi.
Efstu knapar voru:
Barnaflokkur
- Sigríður Magnea Kjartansdóttir
- Ragnheiður Einarsdóttir
- Karítas Ármann
- Viktor Logi Ragnarsson
- Helgi Valdimar Sigurðsson
- Rósa Kristín Jóhannesdóttir
- Hrafndís Katla Elíasdóttir
- Sölvi Freyr Jónasson
- Birgit Ósk Snorradóttir
- Natan Freyr Morthens
Unglingaflokkur
- Kjartan Helgason
- Finnur Jóhannesson
- Guðjón Hrafn Sigurðsson
- Jón Óskar Jóhannesson
- Guðmunda Ellen Sigurðardóttir
- Bryndís Heiða Guðmundsdóttir
- Vilborg Rún Guðmundsdóttir
- Guðjón Örn Sigurðsson
- Björgvin Ólafsson
- Martha Margeirsdóttir
Í liðakeppni barna fékk Smári með 28 stig en Logi 27 stig.
Í unglingaflokki hlaut Smári 34 stig og Logi 21.
Meðfylgjandi eru myndir frá þessari stórskemmtilegu keppni.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH