Kristín Eir og Þytur að eiga frábært Landsmót
Kristín Eir og Þytur eru efst eftir milliriðla í barnaflokki. Mynd: Óla myndir
Kristín Eir Hauksdóttir og Þytur frá Skáney eru að eiga ótrúlega gott mót hér á Landsmóti en þau voru efst eftir sérstaka forkeppni og nú aftur eftir milliriðla. Þau hlutu 8,83 í einkunn og áttu glæsilega sýningu. Allar gangtegundir jafnar og voru m.a. að hljóta allt að 9.0 og yfir fyrir stjórnun og ásetu.
Haukur Orri Bergmanna Heiðarsson og Hnokki frá Reykhólum áttu einnig mjög góða sýningu og tryggðu sér annað sæti í úrslitum. Þeir voru sjöundu fyrir milliriðla. Frábærlega vel riðið og flott sýning hjá þeim.
Fríða Hildur Steinarsdóttir og Framsókn frá Austurhlíð 2 enduðu í þriðja sæti eftir milliriðla með 8,65 í einkunn. Fríða og Framsókn áttu góða sýningu á tölti og stökki.
Frábærar sýningar hjá krökkunum sem fengu mun betra veður en í forkeppni.
B úrslit í barnaflokki eru á fimmtudaginn kl. 15:40
Næst á dagskrá eru milliriðlar í unglingaflokki kl. 12:30
Hér fyrir neðan eru niðurstöður úr milliriðlum í barnaflokki.
Milliriðill – Barnaflokkur – Niðurstöður
Sæti Knapi Hross Aðildarfélag knapa Einkunn
1 Kristín Eir Hauksdóttir Holake Þytur frá Skáney Borgfirðingur 8,83
2 Haukur Orri Bergmann Heiðarsson Hnokki frá Reykhólum Snæfellingur 8,77
3 Fríða Hildur Steinarsdóttir Framsókn frá Austurhlíð 2 Geysir 8,65
4 Kristín Birta Daníelsdóttir Amor frá Reykjavík Sörli 8,58
5 Apríl Björk Þórisdóttir Sikill frá Árbæjarhjáleigu II Sprettur 8,57
6 Þórhildur Helgadóttir Kóngur frá Korpu Fákur 8,52
7 Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir Laufi frá Syðri-Völlum Sprettur 8,52
8 Róbert Darri Edwardsson Ósk frá Brún Geysir 8,48
9 Elísabet Líf Sigvaldadóttir Djörfung frá Miðkoti Geysir 8,47
10-11 Hjördís Halla Þórarinsdóttir Flipi frá Bergsstöðum Vatnsnesi Skagfirðingur 8,46
10-11 Hrefna Kristín Ómarsdóttir Tindur frá Álfhólum Fákur 8,46
12 Guðrún Elín Egilsdóttir Rökkvi frá Miðhúsum Léttir 8,45
13 Elsa Kristín Grétarsdóttir Tvistur frá Efra-Seli Sleipnir 8,39
14 Eyvör Vaka Guðmundsdóttir Bragabót frá Bakkakoti Geysir 8,38
15 Hákon Þór Kristinsson Magni frá Kaldbak Geysir 8,38
16 Ylva Sól Agnarsdóttir Náttfari frá Dýrfinnustöðum Léttir 8,35
17 Súsanna Guðlaug Halldórsdóttir Ronja frá Ríp 3 Skagfirðingur 8,33
18 Arnór Darri Kristinsson Björk frá Árhóli Hringur 8,31
19 Una Björt Valgarðsdóttir Agla frá Ási 2 Sörli 8,31
20 Aþena Brák Björgvinsdóttir Sæfinnur frá Njarðvík Borgfirðingur 8,30
21-22 Kristín Elka Svansdóttir Vordís frá Vatnsholti Sprettur 8,29
21-22 Gabríel Liljendal Friðfinnsson Erró frá Höfðaborg Fákur 8,29
23 Gerður Gígja Óttarsdóttir Ósk frá Árbæjarhjáleigu II Fákur 8,26
24 Loftur Breki Hauksson Höttur frá Austurási Sleipnir 8,25
25 Maríanna Hilmisdóttir Dögg frá Hafnarfirði Sörli 8,17
26 Anton Már Greve Magnússon Viðja frá Steinsholti 1 Dreyri 8,09
27 Sigríður Fjóla Aradóttir Ægir frá Gamla-Hrauni Hörður 8,06
28 Þorgeir Elís Elvarsson Þórbergur frá Túnsbergi Jökull 7,90
29 Kári Sveinbjörnsson Hrafn frá Eylandi Sprettur 7,24
30 Sól Jónsdóttir Sátt frá Kúskerpi Snæfellingur 7,07
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH