Kristín Eir og Þytur efst í fjórgangi unglinga!

  • 22. júlí 2026
  • Fréttir

Kristín Eir og Þytur á Íslandsmótinu í dag. Ljósmynd: Gunnhildur Ýrr/Draumfaramyndataka

Margar góðar sýningar þrátt fyrir blautviðri!

Keppni á Íslandsmóti barna og unglinga hófst í dag á Brávöllum á Selfossi með forkeppni í fjórgangi í unglingaflokki. Þessir flottu knapar létu ekki rigninguna á sig fá og sýndu hesta sýna af stakri snilld. Mótið er sýnt í beinni útsendingu á EiðfaxaTV.

Alls voru þeir 49 knaparnir sem skráðir voru til leiks í fjórgangi V1 í unglingaflokki þar sem hver knapi reið einn inná í einu og stillti upp sýningunni eins og þeim hentaði best.

Eftir daginn í dag er það Kristín Eir Hauksdóttir Holaker á Þyti frá Skáney sem er í forystu með einkunnina 7,07. Í öðru sæti er Loftur Breki Hauksson á Fannari frá Blönduósi með 7,00 í einkunn og í þriðja sæti er Kristín Rut Jónsdóttir á Goða frá Garðabæ með 6,98. Þeim til viðbótar tryggðu það Elísabet Benediktsdóttir á Hildingi frá Sómastöðum og Linda Guðbjörg Friðriksdóttir á Áhuga frá Ytra-Dalsgerði sér þátttökurétt í A-úrslitum.

Hægt er að sjá allar niðurstöður, sundurliðun dómara og dagskrá mótsins á snjallforriti HorseDay.

Niðurstaða úr forkeppni í fjórgangi unglinga

1 Kristín Eir Hauksdóttir Holaker / Þytur frá Skáney 7,07
2 Loftur Breki Hauksson / Fannar frá Blönduósi 7,00
3 Kristín Rut Jónsdóttir / Goði frá Garðabæ 6,93
4 Elísabet Benediktsdóttir / Hildingur frá Sómastöðum 6,87
5 Linda Guðbjörg Friðriksdóttir / Áhugi frá Ytra-Dalsgerði 6,83
6-7 Ragnar Dagur Jóhannsson / Eiðfaxi frá Lækjarbotnum 6,80
6-7 Jóhanna Sigurlilja Sigurðardóttir / Radíus frá Hofsstöðum 6,80
8 Bertha Liv Bergstað / Hólmi frá Kaldbak 6,77
9 Gabríel Liljendal Friðfinnsson / Erró frá Höfðaborg 6,73
10 Loftur Breki Hauksson / Garún frá Austurási 6,60
11-14 Hrefna Kristín Ómarsdóttir / Dáðhugi frá Álfhólum 6,57
11-14 Gabríel Liljendal Friðfinnsson / Litríkur frá Miðengi 6,57
11-14 Emma Rún Arnardóttir / Gletta frá Eystra-Fróðholti 6,57
11-14 Elísabet Líf Sigvaldadóttir / Haki frá Vöðlum 6,57
15 Elsa Kristín Grétarsdóttir / Flygill frá Sólvangi 6,53
16-18 Hákon Þór Kristinsson / Tenór frá Litlu-Sandvík 6,50
16-18 Hjördís Halla Þórarinsdóttir / Krummi frá Hestkletti 6,50
16-18 Hilmir Páll Hannesson / Grímur frá Skógarási 6,50
19-21 Gabríela Máney Gunnarsdóttir / Sjarmur frá Böðmóðsstöðum 2 6,47
19-21 Róbert Darri Edwardsson / Stúdent frá Ásmúla 6,47
19-21 Árný Sara Hinriksdóttir / Moli frá Aðalbóli 1 6,47
22 Linda Guðbjörg Friðriksdóttir / Veigar frá Lækjarbakka 6,43
23-24 Viktor Leifsson / Eldey frá Mykjunesi 2 6,40
23-24 Rakel Sara Atladóttir / Sigga frá Reykjavík 6,40
25 Ísabella Helga Játvarðsdóttir / Lér frá Ekru 6,37
26 Fríða Hildur Steinarsdóttir / Hrynjandi frá Hrísdal 6,33
27-28 Sigríður Elva Elvarsdóttir / Muni frá Syðra-Skörðugili 6,30
27-28 Una Björt Valgarðsdóttir / Eldon frá Varmalandi 6,30
29-30 Ögn H. Kristín Guðmundsdóttir / Tannálfur frá Traðarlandi 6,27
29-30 Hjördís Antonía Andradóttir / Ágúst frá Oddhóli 6,27
31 Emma Rún Sigurðardóttir / Fáni frá Sperðli 6,17
32 Vigdís Björk Sveinbjörnsdóttir / Úlrik frá Hvergilandi 6,10
33-36 Fríða Hildur Steinarsdóttir / Frami frá Hjarðarholti 6,03
33-36 Svava Marý Þorsteinsdóttir / Dalur frá Efri-Brúnavöllum I 6,03
33-36 Svava Marý Þorsteinsdóttir / Þyrla frá Haukholtum 6,03
33-36 Bryndís Anna Gunnarsdóttir / Skuggabaldur frá Borg 6,03
37 Júlía Marín Jónsdóttir / Gloría frá Meðalfelli 5,93
38 Tristan Dagur Þórisson / Blesi frá Böðmóðsstöðum 2 5,90
39 Greta Berglind Jakobsdóttir / Saga frá Kálfsstöðum 5,87
40 Viktor Arnbro Þórhallsson / Gæfa frá Dalsmynni 5,80
41 Eydís Klara Kjartansdóttir / Röst frá Eystra-Fróðholti 5,73
42 Elena Ást Einarsdóttir / Sól frá Stokkhólma 5,63
43 Karítas Hlíf F. Friðriksdóttir / Sýn frá Bergi 5,57
44 Emma Rún Arnardóttir / Freydís frá Gljúfurárholti 5,53
45 Súsanna Sóley Steinarsdóttir / Hringadrottning frá Kolsholti 3 5,50
46 Helgi Björn Guðjónsson / Fjóla frá Þúfu í Landeyjum 5,43
47 Sóley Raymondsdóttir / Hetja frá Bjarkarhöfða 5,27
48 Elísabet Emma Björnsdóttir / Aðgát frá Víðivöllum fremri 5,03
49 Ylva Sól Agnarsdóttir / Náttfari frá Dýrfinnustöðum 0,00

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link