Kristín Eir stigahæsti knapi í unglingaflokki
Kristín Eir stigahæsti knapi í unglingaflokki
Landssamband hestamannafélaga sendi frá sér í dag tilkynningu þess efnis að ranglega hafi verið tilkynnt um stigahæsta knapa í unglingaflokki á Íslandsmóti barna og unglinga.
„Ástæðu þess má rekja til þýðingarvillu í íslenskri útgáfu keppnisreglna FEIF sem hafði áhrif á útreikning stiganna,“ segir í tilkynningunni.
Samkvæmt leiðréttum útreikningum er Kristín Eir Hauksdóttir Holaker stigahæsti knapi í unglingaflokki á Íslandsmóti 2026.
„Landssamband hestamannafélaga og mótshaldari Hestamannafélagið Sleipnir biðja hlutaðeigandi innilega velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa valdið.
Við óskum Kristínu Eir hjartanlega til hamingju með árangurinn.“
Kristín Eir stigahæsti knapi í unglingaflokki
„Hún er ekkert að gefa mér blítt auga“
Hetja í 9,01 fyrir hæfileika
Suðurlandsmót að hefjast á morgun