Króksstaðarreið Léttismanna
„Hin árlega og margrómaða Króksstaðarreið verður farin næstkomandi laugardag 8. júní.
Mæting er á kerruplaninu í Breiðholti kl. 17:30. Grillið kostar aðeins 2000 kr. og óþarfi er að reiða mjöðinn með sér alla leið því hægt verður að bauka sig upp á Króksstöðum gegn vægu gjaldi.
Nú skulum við fjölmenna og eiga góða stund saman.“ segir í tilkynningu frá skemmtinefnd Léttis