KS Deildin: myndir
Sólbjartur frá Flekkudal kom, sá og sigraði fimmganginn í KS-deildinni og hefur því unnið fimmganginn í bæði Meistaradeild Suðurlands og Norðurlands á þessu tímabili. Knapi hans norðan heiða var Ísólfur Líndal Þórisson en vel útfærð og jöfn sýning tryggði þeim félögum sigurinn. Í öðru sæti var Viðar Bragason og hin gráa Binný frá Björgum og í því þriðja var Elvar Einarsson og Djásn frá Hnjúki. Þau sigrðuðu B-úrslitin og voru því hástökkvarar kvöldsins, en þau voru í 10. sæti
eftir forkeppni. Í fjórða sæti var Mette Mannseth og hestur hennar Hnokki frá Þúfum og í því fimmta var Baldvin Ari Guðlaugsson á Sísí
frá Björgum. B-úrslitin voru einnig spennandi, en eins og áður sagði sigruðu Elvar Einarsson og Djásn frá Hnjúki og héldu áfram upp í A-úrslit. Í öðru
sæti var Bjarni Jónasson og hæfileikabomban Gáta frá Ytra-Vallholti og í því þriðja lentu Líney María Hjálmarsdóttir og Villandi frá Feti.
Hinn efnilegi Teitur Árnason og Kristall frá Hvítanesi urðu í því fjórða og Þórarinn Eymundsson og Rispa frá Saurbæ fylltu fimmta sætið.
Ljósmyndari: Hrafnhildur Helga Guðmundsdóttir
Úrslit í fimmgangskeppni KS deildar 20.mars
Forkeppni
Knapi Hestur Eink
1. Ísólfur Líndal Þórisson Sólbjartur frá Flekkudal 7,13
2. Viðar Bragason Binný frá Björgum 6,93
3. Mette Mannseth Hnokki frá Þúfum 6,90
4. Baldvin Ari Guðlaugsson Sísí frá Björgum 6,77
5. Líney María Hjálmarsdóttir Villandi frá Feti 6,73
6. Bjarni Jónasson Gáta frá Y-Vallholti 6,67
7. Þórarinn Eymundsson Rispa frá Saurbæ 6,53
8. Hörður Óli Sæmundarson Hreinn frá Vatnsleysu 6,53
9. Teitur Árnason Kristall frá Hvítarnesi 6,30
10. Elvar Einarsson Djásn frá Hnjúki 6,30
11. Sölvi Sigurðarson Myrra frá Vindheimum 6,20
12. Þorbjörn H Matthíasson Freyja frá Akureyri 6,17
13. Hekla Katarína Kristinsdóttir Hringur frá Skarði
6,10
14. Jóhann Magnússon Skyggnir frá Bessastöðum 6,10
15. Þorsteinn Björnsson Hvinur frá Hvoli 6,03
16. Tryggvi Björnsson Hugi frá Síðu 6,03
17. Bergrún Ingólfsdóttir Bjarmi frá Enni 5,47
18. James Bóas Faulkner Flugar frá Barkarstöðum 5,43
B-úrslit
5. Elvar Einarsson Djásn frá Hnjúki 6,98
6. Bjarni Jónasson Gáta frá Y-Vallholti 6,93
7. Líney María Hjálmarsdóttir Villandi frá Feti 6,91
8. Teitur Árnason Kristall frá Hvítarnesi 6,69
9. Þórarinn Eymundsson Rispa frá Saurbæ 6,62
A – úrslit
1. Ísólfur Líndal Þórisson Sólbjartur frá Flekkudal 7,50
2. Viðar Bragason Binný frá Björgum 7,33
3. Elvar Einarsson Djásn frá Hnjúki 7,21
4. Mette Mannseth Hnokki frá Þúfum 7,19
5. Baldvin Ari Guðlaugsson Sísí frá Björgum 6,98
Staðan
Stigasöfnun
Knapar og Heild.stig
1 Ísólfur Líndal Þórisson 20
2 Viðar Bragason 14
3 Bjarni Jónasson 12
4 Elvar Einarsson 11
5 Þorbjörn H Matthíasson 7
6 Þórarinn Eymundsson 6
7 Mette Mannseth 6
8 Líney María Hjálmarsdóttir 5
9 Baldvin Ari Guðlaugsson 5
10 Bergrún Ingólfsdóttir 3
11 Teitur Árnason 2
12 Sölvi Sigurðarson 1
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH