Kvennaráð í Andvara
Það er ævinlega kraftur í félagsstarfinu í Andvara. Félagið heldur úti fyrirmyndar heimasíðu og þar er að finna margvíslegar upplýsingar um félagsstarfið hverju sinni. Dagskrá vetrarins er þegar þéttbókuð. Þar er að finna uppákomur við flestra hæfi, allt frá fyrirlestrum um kynbótadóma yfir í „krakkadaginn“. Einhverjir gætu þó sagt að jafnvægi milli kynjanna sé þó alls ekki nógu gott í félaginu, því stjórn Andvara er að mestu leiti skipuð konum, eins og sést á meðfylgjandi mynd. Frá vinstri: Þórdís Anna Gylfadóttir, Sigfús A. Gunnarsson, Ingibjörg Guðrún Geirsdóttir formaður, Geirþrúður Geirsdóttir, Hrafnhildur Pálsdóttir, Hulda Jóhannsdóttir og Guðjón Árnason.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH