Kvennatölt Norðurlands næsta laugardag
Kvennatölt Norðurlands fer fram laugardaginn 9. apríl kl. 20 í reiðhöllinni Svaðastaðir á Sauðárkróki, í boði útflutningsþjónustu Eysteins Leifssonar ehf.
„Keppt verður í tveimum flokkum; keppnisvanar og minna keppnisvanar. Skráning fer fram á [email protected] og í síma 8425240 fyrir kl. 17:00 fimmtudaginn 7. apríl. Skráningargjald er kr. 1500.- og greiðist á mótsstað fyrir keppni. Aðgangseyrir er kr. 1000.- og er frítt fyrir 12 ára og yngri. Er þetta annað árið sem þetta mót er haldið og var mótið í fyrra hreint frábært. Hvetjum allar konur til að söðla gæðinga sína og mæta til keppni,“ segir í tilkynningu frá aðstandendum mótsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH