Kynbótaferð Sörla laugardaginn 23. mars

  • 21. mars 2013
  • Fréttir
Kynbótaferð Sörla laugardaginn 23. mars

“Dagskrá: Ferðin byrjar með morgunkaffi að Sörlastöðum kl. 8:30. Kaffisalan verður opin fyrir þá sem vilja fá sér morgunmat fyrir brottför. Rútan leggur af stað kl. 9:00 stundvíslega. Ferðin kostar 3500 kr. (innifalið rúta og hressing). Greitt fyrir brottför. Takið með reiðufé. 

Að þessu sinni heimsækjum við fyrst Fákshóla og skoðum aðstöðu og gæðingaval. Síðan er ferðinni heitið í uppsveitir Suðurlands að Efra-Langholti og Túnsbergi. Rúsínan í pylsuendanum er svo heimsókn til Sörlakonunnar Rósu Birnu og Daníel Larsen að Þjórsárbakka. Þar er glæsileg aðstaða og full starfemi í gangi. Í millitíðinni borðum við á  Hótel Grund á Flúðum og höfum samið um frábæran hádegismat á Sörla afslætti.  
Sem sagt, Fákshólar, Efra-Langholt, Túnsberg og Þjórsárbakki. Áætluð heimkoma í Hafnarfjörð er um18:00. Þetta eru alltaf frábærar ferðir og oft uppselt. Því er um að gera að bóka sig sem fyrst.

Skráning hjá Magnúsi á Sörlastöðumí síma 897-2919,“ segir í tilkynningu frá kynbótanefnd Sörla
 
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link