Kynbótaknapar of fáir
Í nýju blaði Eiðfaxa sem kemur út á morgun er meðal annars efnis viðtal við Marlise Grimm ræktunarfulltrúa FEIF. Marlise svarar nokkrum spurningum um málefni ræktunarinnar og dómstörfin en hér er úrdráttur úr viðtalinu:
Blm: Eru einhver skref sem þarf að taka sjáanleg í framtíðinni eða eru öll kerfi fullnægjandi?
Marlise: „Við sem vinnum fyrir kerfið þurfum að vera í nánara sambandi við þá sem við vinnum fyrir, þ.e. ræktendur og sýnendur. Æskilegt væri að haldnir væru opnir vinnu fundir þessara aðila allra og málin rædd. Sýningarknöpum þarf að fjölga, það er ekki gott ef að kerfið sé þannig að aðeins fáir treysti sér til að sýna kynbótahross. Mín skoðun á framkvæmd sýninganna er að ekki sé neinna sérstakra breytinga þörf. Umræðuna um brautirnar, hringvöllinn og beinu brautina tel ég óþarfa og engar breytingar nauðsynlegar. Beina brautin er góð og mörg dæmi þess að hátt dæmd kynbótahross standi sig einnig vel á hringvellinum í sportinu“
Rétt er að minna á að blaðið er komið út í rafrænu formi hér á vefnum og er það frítt fyrir áskrifendur Eiðfaxa.
Blaðið er svo selt í lausasölu í flestum hestavöruverslunum og á útsölustöðum N1.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH